Leikkonan Angelina Jolie er í dag orðin jafn þekkt fyrir störf sín í mannúðarmálum eins og fyrir kvikmyndir. Hún hefur nú fengið nýtt og spennandi verkefni sem settur prófessor í London School of Economics í nýju meistaranámi um konur, frið og öryggi. Námið er fyrsta sinnar tegundar í heiminum.
London School of Economics er einn virtasti háskóli heims og þar kenna mikið af prófessurum sem koma frá öllum heimshornum. Námið hefst í september á þessu ári og verður í eitt ár. Angelina mun þó ekki mikið við þar sem hún hefur samið við LSE að kenna minnst einu sinni á ári.
Angelina segir að námið sé mikilvægt skref til þess að kafa dýpra í umræðuna um öryggi kvenna og hvernig má auka jafnrétti þeirra.

