Lífið

Simon Cowell séð marga hæfileikaríka en þessi 13 ára stelpa toppaði alla

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ótrúleg stúlka.
Ótrúleg stúlka. vísir
Laura Bretan er 13 ára stelpa sem vakti gríðarlega athygli í síðasta þætti af America´s Got Talent en hún er óperusöngkona og með enga smá rödd.

Áður en hún steig á sviðið var hún mjög stressuð en það má með sanni segja að Bretan hafi skilað óaðfinnanlegum flutningi.

Bretan tók lagið Nessun Dorma og þegar hún byrjaði að syngja misstu allir gjörsamlega andlitið.

„Á öllum mínum árum í þessum bransa hef ég aldrei séð annað eins, þú ert ótrúleg,“ sagði Simon Cowell en hér að neðan má sjá flutninginn.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×