Fótbolti

Gylfi Þór: Lofa ykkur því að við verðum klárir gegn Portúgal

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Miðjumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson lofar íslensku þjóðinni að liðið verði klárt gegn Portúgal í Saint-Etienne þann 14. júní eftir að liðið tapaði gegn Noregi í kvöld í vináttulandsleik.

„Við gætum örugglega talað hérna í tíu til fimmtán mínútur, en við vorum bara lélegir. Við vorum þungir og byrjuðum leikinn skelflilega," sagði Gylfi Þór í leikslok.

„Við fórum að spila aðeins betur í síðari hálfleik og Theódór Elmar kom frábær inn í bakvörðinn. Hann fór að vinna fleiri skallabolta og þar af leiðandi vorum við meiri með boltann, þar af leiðandi gekk þetta betur í síðari hálfleik."

Gylfi segir að fyrri hálfleikurinn sé ekki áhyggjuefni heldur sé þetta gott að fá þetta í andlitið þegar enn er smá tími í mótið.

„Nei, ég held að það sé bara mjög gott að fá svona sleggju í andlitið á okkur. Við erum komnir niður á jörðina núna og við þurfum að leggja mjög mikið á okkur næstu tvær vikur ef við ætlum ekki að steinliggja í Frakklandi."

„Það eru margir leikmenn sem eru hvíldir í dag og auðvitað er skrýtið að spila svona leik þar sem þú vilt vinna leikinn, en þú vilt alls ekki meiðast. Það eru tvær vikur í Frakkland."

„Ég segi það bara sjálfur að ég fór ekki í neina tæklingu og tók enga sénsa, þannig að þetta er dálítið skrýtið. Við vorum bara ekki nægilega góðir og þegar við erum að spila þannig erum við langt frá því að vinna lið eins og Noreg."

Varnarleikurinn hefur verið slakur í æfingarleikjunum undanfarið.

„Hannes heldur alltaf hreinu. Hann er toppmaður," gantaðist Gylfi, en hélt svo áfram: „Í fyrsta markinu var skotið í Sverrir og Ögmundur gat ekki gert mikið í því. Í öðru markinu er það aukaspyrnan og það erfitt þegar þetta er svona nálægt. Ég veit það sjálfur. Ef þú hittir í hornið þá nær markmaðurinn ekki boltanum."

„Ég get tekið þriðja markið á mig að ég hefði skallað boltann ef ég væri betri í hálsinum, þá hefði það ekki komið. Þegar þú breytir um nokkra leikmenn í vörninni þá riðlast skipulagið aðeins og það kemur smá óöryggi. Þegar við erum að spila með okkar alla lið og þegar allir standa sig vel þá erum við í hörkuformi."

„Auðvitað þurfum við að átta okkur á því að við þurfum leggja mikið á okkur næstu tvær vikur ef við ætlum að spila betur en í kvöld, en við skulum ekki alveg missa okkur þrátt fyrir 3-2 tap gegn Noregi."

„Hannes, Kári og fleiri eru búnir að vera með smávægileg meiðsli og þurftu hvíld til þess að vera í Frakklandi, en svo voru það ég og fleiri sem þurftum að fá 90 mínútur útaf það var svo langt síðan við spiluðum," sagði Gylfi og bætti við að lokum:

„Við erum ekki alveg á svipuðum stöðum hvað varðar leikform, en ég get lofað ykkur því að við verðum klárir gegn Portúgal."


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×