„Mér finnst það pínu sorglegt, miðað við áhugann sem er búinn að myndast hjá íslensku þjóðinni,“ segir Eiður Smári. Hann minntist á að íslensku stuðningsmennirnir hefðu myndað frábæra stemningu á leikjum Íslands í Frakklandi.
„Mér finnst það dálítið erfiður biti að kyngja.“
Blaðamannafundinn í heild, sem var stórskemmtilegur, má sjá hér að neðan.
Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook , Twitter og Snapchat (sport365).