Innlent

Akureyringur fékk sjö milljóna bónusvinning

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
vísir/valli
Akureyringur er rúmum sjö milljónum ríkari eftir Víkingalottó kvöldsins. Maðurinn var með fimm aðaltölur réttar auk bónustölunnar.

Aðalvinningurinn gekk út en Finni og tveir Norðmenn skipta honum á milli sín. Þeir fá hver um sig tæpar 59 milljónir króna.

Tíu einstaklingar voru síðan með fjórar réttar tölur í Jókernum og fá hundraðþúsund krónur hver. Þrír miðanna voru keyptir í Reykjavík, einn í Grundarfirði og einn í Þorlákshöfn. Þrír miðanna voru áskrift og tveir keyptir á lotto.is.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×