

Að líta í eigin barm
Hlutverk Kauphallar
Kauphöll er lögbundinn eftirlitsaðili með kauphallarviðskiptum og innheimtir verulegar fjárhæðir til að sinna eftirlitsskyldu sinni. Kauphöllin hefur jafnframt yfirsýn yfir öll viðskipti og ræður yfir víðtækum tæknibúnaði til að uppfylla skyldur sínar. Kauphöllin setur einnig reglur um hvernig kauphallarviðskipti fari fram og hvaða kröfur eigi að gera til kauphallaraðila. Kauphöllin hefur því mikla möguleika á því að hafa áhrif á hvernig viðskipti eru útfærð.
Starfsemi Kauphallarinnar má að nokkru leyti líkja við hlutverk flugumferðarstjóra. Með sama hætti og flugumferðarstjórar fylgjast með flugstjórum og setja þeim viðmið um hvar þeir megi fljúga og hvar ekki, fylgjast starfsmenn Kauphallar með verðbréfamiðlurum í daglegum störfum sínum og setja þeim viðmið um hvað sé heimilt og hvað ekki. Ef þessari samlíkingu er fylgt áfram þá leyfði flugumferðarstjórn (Kauphöllin) flugstjórum að fljúga eftir sömu leiðum allt frá stofnun markaða til haustsins 2008.
Markaðsmisnotkunarmál Landsbankans
Í svokölluðu markaðsmisnotkunarmáli Landsbankans voru m.a. verðbréfamiðlarar í eigin viðskiptum bankans sakfelldir. Þeir höfðu gengið inn í framkvæmd sem var óbreytt frá skráningu hlutabréfa bankans á markaði. Hvorki Kauphöllin né aðrir eftirlitsaðilar gerðu athugasemdir við háttsemi þeirra allt frá því að þeir hófu störf hjá bankanum og þar til bankinn féll haustið 2008. Í gögnum málsins og vitnaskýrslum kom fram að starfsmenn Kauphallar hefðu talið aðkomu bankanna mikilvæga forsendu fyrir því að hér gæti yfirleitt þrifist hlutabréfamarkaður. Jafnvel þremur árum eftir að þessum viðskiptum lauk, taldi Kauphöllin í bréfi til Fjármálaeftirlitsins ekki ástæðu til að gera athugasemdir við þátt eigin viðskipta bankans í kaupum. Í bréfinu bendir Kauphöllin réttilega á að hlutabréfaverð íslensku bankanna hafi lækkað umtalsvert umfram verð hlutabréfa í öðrum fjármálafyrirtækjum á ákærutímabilinu og viðskipti þeirra með eigin bréf hafi verið öllum kunn. Í bréfinu er varað við þröngsýni og eftiráspeki og skorti á því að kaupin séu sett í samhengi við ytri aðstæður.
Að líta í eigin barm
Umbjóðandi minn sem hefur aldrei á ævi sinni gerst brotlegur við lög og reynt að rækja sínar starfsskyldur heiðarlega og eftir bestu samvisku, er ekki að reyna að skorast undan ábyrgð. Hann hefur hins vegar spurt verjanda sinn að því í hverju refsiverð háttsemi hans sé fólgin. Sú spurning er ekki borin fram af neinu yfirlæti, heldur af fyllstu einlægni einstaklings sem er að leggja sig allan fram við að reyna að skilja hvað hann er sakaður um. Þar stangast allt á. Ekkert samræmi er í því hverjir eru ákærðir. Þeir sem gegna sambærilegum störfum og hljóta þyngstu refsingu hjá einu fjármálafyrirtæki eru ekki ákærðir og eru jafnvel lykilvitni ákæruvaldsins hjá öðru fjármálafyrirtæki.
Samkvæmt lögum er fjármálafyrirtækjum heimilt að kaupa eigin bréf og lána til kaupanna. Við setningu laganna var frumvarpsdrögum sérstaklega breytt til að tryggja slíka heimild án þess að fjármálafyrirtækin þyrftu að gerast formlegir viðskiptavakar. Slík viðskipti eru stunduð á Evrópska efnahagssvæðinu með það að markmiði að tryggja hnökralausa verðmyndun hlutabréfa á skráðum mörkuðum og sjá til þess að hluthafar geti á hverjum tíma keypt og selt bréf. Í erlendum fræðiritum sem lögð hafa verið til grundvallar í kennslu hér á landi er sérstaklega farið yfir mikilvægi þessa og varað við því að rugla þessu saman við markaðsmisnotkun.
Eignarhlutur Landsbankans í eigin bréfum við fall bankans í október 2008 var 2,1% en til samanburðar var eignarhlutur Danske bank á sama tíma 1,6% (lagalega heimildin er 10%). Af hálfu Kauphallar voru þessi kaup talin æskileg og forsenda fyrir vexti og viðgangi hlutabréfamarkaðar. Viðskiptin voru undir eftirliti sérfróðra aðila og þar gegndi Kauphöllin lykilhlutverki. Umbjóðanda mínum finnst sérkennilegt að sérfróður eftirlitsaðili á markaði sem gerði engar athugasemdir við framkvæmd viðskiptanna skuli nú höfða til ábyrgðartilfinningar hans. Gæti verið að þessi sérfróði eftirlitsaðili þyrfti e.t.v. að líta í eigin barm.
Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Skoðun

„Evrópa er í hnignun“ – Er það samt? Lítum aðeins á söguna
Guðni Freyr Öfjörð skrifar

Vindmyllufyrirtæki í áskrift hjá íslenskum almenningi
Linda Jónsdóttir skrifar

Metnaðarfull markmið og stórir sigrar
Halla Helgadóttir skrifar

Hvers virði er vara ef hún er ekki seld?
Jón Jósafat Björnsson skrifar

Aulatal um að Evrópa sé veik og getulaus
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Ár vondra vinnubragða í Stúdentaráði HÍ
Katla Ólafsdóttir,Mathias Bragi Ölvisson skrifar

Mannúð og hugrekki - gegn stríðsglæpum og þjóðarmorði
Ólafur Ingólfsson skrifar

Framtíð menntunar – byggjum á trausti, ekki tortryggni
Helga Kristín Kolbeins skrifar

Fé án hirðis
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar

Gæludýr geta dimmu í dagsljós breytt
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Myllan sem mala átti gull
Andrés Kristjánsson skrifar

Sjö mýtur um loftslagsbreytingar
Kristinn Már Hilmarsson,Elva Rakel Jónsdóttir skrifar

Pírati pissar í skóinn sinn
Helgi Áss Grétarsson skrifar

Ógnin sem við sjáum ekki – Hið falda tungumál ungu kynslóðarinnar á netinu
Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar

Fáum presta aftur inn í skólana
Rósa Guðbjartsdóttir skrifar

Rösk og reiðubúin fyrir landsbyggðina
Hópur Röskvuliða skrifar

Icelandic Learning is a Gendered Health Issue
Logan Lee Sigurðsson skrifar

Goðsögnin um UFS-sjóði sem róttækar „woke"- fjárfestingar
Már Wolfgang Mixa skrifar

Framtíð Öskjuhlíðar
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Vanhæfur Sjálfstæðisflokkur
Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar

Mælt fyrir miklum kjarabótum öryrkja og aldraðra
Inga Sæland skrifar

Mannréttindabrot og stríðsglæpir Rússa í Úkraínu
Erlingur Erlingsson skrifar

Áskorun til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Háskóla Íslands
Ríkharður Ólafsson,Styrmir Hallsson skrifar

Ákvarðanir teknar í Reykjavík – afleiðingarnar skella á okkur
Hópur Framsóknarmanna í sveitarstjórnum skrifar

Snjallborgin eða Skuggaborgin Reykjavík: Gervigreindarknúið höfuðborgarsvæði
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Getur Sturlunga snúið aftur?
Leifur B. Dagfinnsson skrifar

Vaka stendur með Menntavísindasviði í verki
Gunnar Ásgrímsson skrifar

Vorbókaleysingar
Henry Alexander Henrysson skrifar

Er þetta í alvöru umdeild skoðun fámenns hóps?
Snorri Másson skrifar

Liðveisla fyrir öll
Atli Már Haraldsson skrifar