Íslenski boltinn

Pepsi-mörk kvenna: Sjáðu glæsimark Margrétar Láru og öll hin mörkin

Anton Ingi Leifsson skrifar
Það var mikið skorað í sjöttu umferð Pepsi-deildar kvenna, en umferðin fór fram á miðvikudag og fimmtudag.

Sjötti þátturinn af Pepsi-mörkum kvenna var í gærkvöldi þar sem öll mörkin og atvikin voru skoruð í leikjunum fimm, auk þess sem farið var yfir skemmtilegar umræður.

Flest mörkin voru skoruð á Valsvelli þar sem Valur skellti Þór/KA 6-1, en næst flest komu hjá bikarmeisturum Stjörnunnar. Þær unnu nýliða ÍA 6-0.

Selfoss vann svo 2-0 sigur á nýliðum FH, Breiðablik átti ekki í vandræðum með ÍBV í Eyjum og lokatölur 4-0. Fylkir og KR skildu svo jöfn í Árbænum, 1-1, en Fylkis-liðið á enn eftir að vinna leik í mótinu.

Stjarnan er á toppi deildarinnar með 16 stig, en Breiðablik er með 14 stig. Valur kemur svo í þriðja sætinu með 11 stig. ÍA er á botninum með eitt stig, en Fylkir er í níunda sætinu með fjögur stig.

Öll mörk umferðarinnar má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×