Íslenski boltinn

Mörkin úr Bestu: Sjáðu sturlað mark Emils frá miðju og Davíð bjarga stigi

Sindri Sverrisson skrifar
Davíð Ingvarsson fór á kostum fyrir Breiðablik í leiknum við Val í gær.
Davíð Ingvarsson fór á kostum fyrir Breiðablik í leiknum við Val í gær. vísir/Diego

Barátta Víkings og Breiðabliks um Íslandsmeistaratitilinn er áfram hnífjöfn eftir leikina í þriðju síðustu umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Mörkin úr leikjum þeirra má nú sjá á Vísi.

Bæði toppliðin gerðu jafntefli í gær, Blikar 2-2 við Val en Víkingar 2-2 við Stjörnuna. Þar með er Víkingur enn á toppnum með betri markatölu en Breiðablik, nú þegar landsleikjahlé tekur við fyrir tvær síðustu umferðirnar.

Tryggvi Hrafn Haraldsson nýtti sér mistök í vörn Blika og kom Val yfir um miðjan fyrri hálfleik, í Kópavogi í gær. Davíð Ingvarsson jafnaði metin fyrir Blika með sínu fyrra marki, með skoti frá vítateigslínu, en Patrick Pedersen kom Val yfir að nýju með skalla eftir fyrirgjöf Tryggva.

Á 76. mínútu jafnaði Davíð hins vegar metin aftur, með þrumuskoti utan teigs í nærhornið.

Klippa: Mörk Breiðabliks og Vals

Emil Atlason skoraði ótrúlegt mark frá eigin vallarhelmingi, í 2-2 jafntefli Víkings og Stjörnunnar. Viktor Örlygur Andrason jafnaði metin fyrir Víkinga á 84. mínútu en þá áttu enn eftir að bætast við tvö mörk.

Hilmar Árni Halldórsson skoraði eftir frábæra sendingu Óla Vals Ómarssonar, en í lok uppbótartíma jafnaði Víkingur aftur þegar þrumuskot Óskars Arnar Haukssonar fór í varnarmann, þaðan í Daða Berg Jónsson og inn.

Klippa: Mörk Víkings og Stjörnunnar

Á Akranesi kom Kjartan Kári Halldórsson FH yfir á fyrstu mínútu, með sniðugu marki beint úr aukaspyrnu. Gleði FH-inga var þó skammlíf því ÍA svaraði með þremur mörkum á næstu tuttugu mínútum og vann leikinn að lokum 4-1. Viktor Jónsson, Jón Gísli Eyland Gíslason, Johannes Vall og Hinrik Harðarson skoruðu mörkin.

Klippa: Mörk ÍA og FH

Í neðri hluta deildarinnar héldu KR-ingar áfram að raða inn mörkum og unnu 4-0 útisigur gegn bikarmeisturum KA. Birgir Steinn Styrmisson skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild eftir frábæran sprett fram völlinn, og þeir Luke Rae, Eyþór Aron Wöhler og Benoný Breki Andrésson bættu við þremur mörkum.

Klippa: Mörk KR gegn KA

Vestri vann svo afar mikilvægan 4-2 útisigur gegn Fram, þar sem Andri Rúnar Bjarnason skoraði þrennu, þar af eitt mark með hálfótrúlegum hætti frá endalínu. Benedikt Warén skoraði einnig fyrir Vestra en þeir Alex Freyr Elísson og Kennie Chopart fyrir Fram.

Klippa: Fram 2-4 Vestri

HK felldi svo Fylki með 2-2 jafntefli þar sem jöfnunarmarkið kom seint í uppbótartíma, of seint að mati Rúnars Páls Sigmundssonar þjálfara Fylkis sem fékk rautt spjald fyrir kröftug mótmæli. Mörkin úr leiknum og umræðu um allt það helsta sem gerðist má sjá í Stúkunni á Stöð 2 Sport í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×