Skoðun

MS – Og hvað svo?

Það er alveg ljóst að það eru engir sjóðir í félaginu sem hægt er að ganga í þannig að svona sektir, hvort sem það eru 100 milljónir, 1000 milljónir eða 2000 milljónir koma bara frá einum stað. Úr vösum neytenda.“ – Ari Edwald, forstjóri MS í fréttum RÚV.

Mjólka ætlaði að keppa við risann, en var gleypt. Aðferðin varð Samkeppniseftirlitinu tilefni til að leggja mörg hundruð milljóna króna sekt á fyrirtækið. Forstjórinn strengir þess heit að þú kæri lesandi munir borga sektina. Enginn vill sitja aðgerðarlaus undir slíku. En hvað á að gera?

Mjólk eða léttmjólk, smjör, ostur, skyr og jafnvel rjómi kallast nauðsynjar á flestum heimilum. Er málið að sniðganga MS? Sýna óánægju í verki með því að versla við þá keppinauta sem enn eru til? Hversdagslegar mjólkurhillur í matvörubúðinni virka eins og þær hafi verið hannaðar til að kæla niður eldmóðinn. Það virðast fáir kostir í boði aðrir en að borga sektina.

Í grunninn snýst málið um framferði stjórnenda fyrirtækis sem spila á regluverk sem hyglar því sérstaklega. Það býr við forréttindi sem voru veitt með lögum. Lögin þarf að endurskoða eða afturkalla. Þetta er verkefnið framundan.

Fákeppni er orð sem oft heyrist í fréttunum. Hér finnst varla sá bransi að nota þurfi alla fimm fingur annarrar handar til að telja upp keppinautana. Olía, apótek, bankar, matvara, heimsendar pizzur. Engum finnst fákeppni góð. Hvað segjum við um einokun?

Ranglæti er líklega það orð sem kemst ansi nálægt því að lýsa stöðunni. Í forréttindum handa einum er fólgið óréttlæti allra hinna.

Almenningur byrjar að tapa þegar samkeppnislögin eru sniðgengin. Beinn og óbeinn skaði bitnar á okkur. Við höldum svo áfram að tapa þegar við komumst ekki hjá því að greiða sektina sem sá brotlegi leggur á okkur með verðhækkun. Enn tapar almenningur þegar matarkörfur og mötuneyti berast til Hagstofunnar. Samkeppnissektin er orðin að verðbólgu.

Rökin fyrir lögvernduðum forréttindum eins liggja ekki í augum uppi. Ekki snýst þetta um fæðuöryggi eða sérstöðu landbúnaðar norður í hafi. Hvorki garðyrkja né kjötframleiðsla fá svoleiðis, ekki frekar en annar fyrirtækjarekstur.

Við sem ekki sættum okkur við framferði og aðstöðu MS getum sýnt hug okkar í verki og látið til okkar taka í kælinum. En það þarf meira til. Löggjöf veitti einum réttindi umfram aðra. Þetta verður kosningamál í haust, en hvað svo? Þingmenn verða að skoða málið frá grunni. Alþingi verður að taka málið föstum tökum og leiða til niðurstöðu. Þar þurfa hagsmunir almennings að vera númer eitt. Það er ekkert annað í boði.




Skoðun

Skoðun

Á­kall um kjark

Guðbjörg Pálsdóttir,Kolbrún Halldórsdóttir,Steinunn Þórðardóttir,Svana Helen Björnsdóttir skrifar

Sjá meira


×