Bíó og sjónvarp

Baltasar frumsýnir fyrsta sýnishornið úr Eiðnum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Baltasar fer með aðalhlutverkið í myndinni.
Baltasar fer með aðalhlutverkið í myndinni. vísir
Spennumyndin Eiðurinn er ný kvikmynd eftir Baltasar Kormák. Myndin verður frumsýnd á Íslandi 9.september og á kvikmyndahátíðinni í Toronto sömu helgi. Nú má sjá nýja stiklu úr myndinni sem kom út í dag. 

Myndin segir frá Finni, sem þykir skara fram úr í starfi sínu sem hjartaskurðlæknir. En þegar hann áttar sig á að dóttir hans er komin í neyslu og kynnir þekktan dópsala fyrir fjölskyldunni sem nýja kærastann, koma fram brestir í einkalífinu.

Finnur ákveður að taka í taumana og er staðráðinn í að koma dótturinni á réttan kjöl, hvað sem það kostar. Að þessu sinni er Baltasar ekki einungis leikstjóri og einn af framleiðandum myndarinnar, heldur leikur hann einnig aðalhlutverið.

Hera Hilmarsdóttir leikur dótturina, Önnu og Gísli Örn Garðarsson er í hlutverki kærastans. Handritið er byggt á upprunalegri sögu Ólafs Egils Egilssonar, en er skrifað af þeim Ólafi og Baltasar. RVK Studios framleiðir myndina í samstarfi við Film4 í Bretlandi og ZDF í Þýskalandi, en framleiðendur eru þeir Baltasar Kormákur og Magnús Viðar Sigurðsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.