Innlent

Mikið um ölvun og óspektir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Úr Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Úr Flugstöð Leifs Eiríkssonar. vísir/pjetur
Nokkuð hefur verið um það seinustu vikuna að lögreglan á Suðurnesjum hafi þurft að sinna útköllum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar vegna ölvunarástands og óspekta flugfarþega. Þannig hefur lögreglan þurft að sinna sex útköllum vegna þessa seinustu sjö daga.

Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að í gær hafi ölvuðum farþega verið neitað um að fara í flug til Varsjár þar sem hann hafði verið að angra farþega í flugvél sem hann kom með hingað til lands.

Í fyrradag hafði lögregla svo afskipti af öðrum flugfarþega sem lét öllum illum látum við afgreiðsluhlið í flugstöðinni. Sá ætlaði til Las Palmas en fékk ekki að fara um borð í vélina vegna ástands síns. Hann brást afar illa við afskiptum lögreglu svo handtaka varð hann og færa á lögreglustöð, þar sem hann var vistaður í fangaklefa.

Í gær var lögregla enn kölluð í flugstöðina. Var þar kominn sami maður og daginn áður, enn ölvaður, og nú með leiðindi við fólk sem á vegi hans varð. Hann var handtekinn aftur og færður í fangaklefa enn á ný.

Þá voru tveir farþegar til viðbótar sem voru á leið til Bandaríkjanna svo illa á sig komnir að ekki var hægt að hleypa þeim um borð fyrr en þeir hefðu sofið úr sér.

Loks datt ölvaður farþegi, sem kom frá Washington á leið til Stokkhólms, í gólfið í flugstöðinni og skarst lítillega í andliti. Gert var að sárum farþegans sem fékk ekki að halda ferð sinni áfram að svo stöddu, heldur lá leiðin í fangaklefa um sinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×