Bíó og sjónvarp

Farið yfir hvað Þór hefur verið að brasa

Samúel Karl Ólason skrifar
Þór og meðleigjandi hans Darryl.
Þór og meðleigjandi hans Darryl.
Margir hafa velt fyrir sér hvað norræni guðinn Þór var að brasa þegar ofurhetjur Marvel börðust sín á milli í myndinni Civil War. Þeirri spurningu hefur nú verið svarað.

Hann var ekki að gera neitt.

Marvel birti í dag bráðfyndið myndband þar sem Chris Hemsworth, í hlutverki Þórs, segir frá því að hann búi nú í Ástralíu.

Á milli þess sem Þór angrar meðleigjanda sinn Darryl í vinnunni og fær sér kaffibolla með Bruce Banner, reynir hann að leysa ráðgátuna um eilífðarsteinana og að komast að því hver fjólublái maðurinn sem er illa við að standa er.

Þá virðist Þór vera ósáttur við að Tony Stark, Iron man, og Steve Rodgers, Captain America, hafi ekki verið í sambandi við hann þegar atburðirnir úr Civil War áttu sér stað.

Meðfylgjandi myndband var upprunalega sýnt á Comi-Con. Þór mun sjást næst á hvíta tjaldinu á næsta ári í myndinni Thor: Ragnarok.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.