Lífið

Bein útsending: Garðpartý í Hljómskálagarðinum

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Vísir
Bylgjan og Stöð 2 bjóða til garðveislu og stórtónleika í Hljómskálagarðinum á Menningarnótt þann 20. ágúst.

Stöðvarnar fagna báðar í ár, 30 ára afmæli.

Í Hljómskálagarðinum verður viðstöðulaus tónlistarveisla frá kl. 17:15 – 22:45 á  tveimur samliggjandi sviðum með risaskjá á milli.

Dagskráin verður eftirfarandi:

kl. 17:15 - Axel Flóvent

kl. 17:45 - Steinar

kl. 18:15 - Sylvía

kl. 18:45 - Geiri Sæm og Hunangstunglið

kl. 19:15 - Friðrik Dór

kl. 19:45 - Á móti sól

kl. 20:15 - Valdimar

kl. 20:45 - Bítlavinafélagið

kl. 21:15 - Amabadama

kl. 21:45 - Mezzoforte

kl. 22:15 - Jón Jónsson

Tónleikunum lýkur kl. 22:45 og þá geta gestir gengið í rólegheitum í átt að Kvosinni til að sjá flugeldasýningu Menningarnætur sem hefst kl. 23.

Í upphafi garðveislunnar býður Ali öllum gestum í grill, Nettó býður upp á súpu og Floridana svalar þorsta gesta á meðan birgðir endast. Afmælisbörnin Bylgjan og Stöð 2 senda út beint frá tónleikunum frá kl. 19:15.

Að neðan má sjá seinni hluta tónleikanna, eða frá klukkan 19:15 og til loka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.