Aðalfundur Samtakanna ’78 verður haldinn 11. september næstkomandi. Tveir hópar með ólíkar áherslur hafa boðið sig fram til stjórnarsetu og formennsku. Félagsmaður fullyrðir við Fréttablaðið að klofningur sé nærri óhjákvæmilegur. Stór hópur muni segja sig úr samtökunum á hvorn veginn sem atkvæði falla í formannskjörinu.

„Eitt af því sem hefur verið fleygt fram af fólki úr hinni fylkingunni, ef svo má að orði komast, er að samtökin standi ekki nægilega mikinn vörð um málefni homma og lesbía,“ segir María sem kveður þetta þó ekki rétt.
„Það er mjög mikið af málefnum hér inni á borði sem varða beint hagi homma og lesbía. Í fyrra, þegar við kærðum hatursorðræðu gegn hinsegin fólki í fjölmiðlum, var langmest af þeirri hatursorðræðu beint gegn samkynhneigðum til dæmis.“