Formúla 1

Alonso: Stoffel Vandoorne mun leiða McLaren inn í framtíðina

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Stoffel Vandoorne og Fernando Alonso veita viðtöl á Monza brautinni.
Stoffel Vandoorne og Fernando Alonso veita viðtöl á Monza brautinni. Vísir/Getty
Fernando Alonso segir að ungstirnið Stoffel Vandoorne muni leiða McLaren liðið inn í framtíðina. Alonso segir einnig að hann og Jenson Button muni gera allt til að aðstoða Belgann.

Vandoorne er ríkjandi GP2 meistari en hann mun fá sæti keppnisökumanns hjá McLaren á næsta tímabili. Vandoorne er þróunarökumaður McLaren þetta tímabil. Button mun þá taka frí frá Formúlu 1 á næsta ári og þá skapast rúm fyrir Vandoorne.

Vandoorne segir það verða erfitt að feta í fótspor Button. Alonso segir þó að þremmenningarnir muni vinna saman að því að gera umskiptin auðveldari fyrir alla.

„Við Jenson erum sammála um að við ættum að hjálpa Stoffel að ná áttum í F1 vegna þess að við vitum að hann getur orðið aðal maðurinn í McLaren í framtíðinni,“ sagði tvöfaldi heimsmeistarinn Alonso.

„Í ár erum við Jenson að keppa á fullu til að vinna hvorn annan en á sama tíma viljum við hjálpa liðinu. Stoffel hefur hjálpað mikið sem þróunarökumaður, hann er búinn að vera mikið í akstursherminum og hann hefur unnið mikið með verkfræðingunum,“ bætti Alonso við.


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Mercedes átti Monza

Nico Rosberg á Mercedes kom fyrstur í mark á Mkonza og nældi sér í 25 stig. Hann minnkaði forksot liðsfélaga síns í heimsmeistarakeppni ökumanna úr niu stigum í tvö.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×