Eimskip stærsta fyrirtækið í Kauphöllinni fyrir tuttugu árum en það fimmta stærsta í dag Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 2. september 2016 11:34 Fyrir tuttugu árum síðan var Eimskip stærsta félagið í Kauphöllinni en miðað er við verðmæti fyrirtækjanna á hverjum tíma og á verðlagi hvers árs. Vísir/GVA
Stoðtækjafyrirtækið Össur er stærsta fyrirtækið í Kauphöllinni í dag samkvæmt samantekt Íslandsbanka en bankinn hefur tekið saman upplýsingar um fimm stærstu fyrirtækin í Kauphöllinni árin 1996, 2006 og svo í dag, 2016. Fyrir tuttugu árum síðan var Eimskip stærsta félagið í Kauphöllinni en miðað er við verðmæti fyrirtækjanna á hverjum tíma og á verðlagi hvers árs. Þannig var Eimskip fjórtán milljarða virði árið 1996 en í dag er það sextíu milljarða virði og er fimmta stærsta félagið í Kauphöll. Tíu árum síðar, í miðju góðæri árið 2006, var Kaupþing stærsta fyrirtækið í Kauphöllinni og var verðmæti þess 623 milljarðar króna. Hinir bankarnir tveir röðuðu sér í næstu sæti á eftir þar sem verðmæti Glitnis var 332 milljarðar og Landsbanka Íslands 292 milljarðar. Á þessum tíma komst Eimskip ekki í hóp fimmtu stærstu fyrirtækja landsins eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan. Í dag Össur stærsta fyrirtækið í Kauphöllinni eins og áður segir og er verðmæti þess 191 milljarðar króna. Marel er næststærsta fyrirtækið og þá kemur Icelandair Group þar á eftir en forveri Icelandair Group, Flugleiðir, voru líka þriðja stærsta fyrirtækið í Kauphöll fyrir tuttugu árum.mynd/íslandsbanki
Mest lesið Úrelt kerfi: „Síðan kom bara einhver bíll og tæmdi allt“ Atvinnulíf Viðræðum slitið um samruna Samkaupa, Heimkaupa og Orkunnar Viðskipti innlent Sorp: Fólk að hoppa niður plastið í tunnunum til að þjappa því Atvinnulíf Hagnaður Arion banka eykst um tæpa tvo milljarða Viðskipti innlent Auknar líkur á annarri vaxtalækkun Viðskipti innlent Skellt í lás í Sambíóinu í Keflavík í kvöld Viðskipti innlent „Ekkert ósvipaður leikur og menn léku í bönkunum fyrir bankahrun“ Atvinnulíf „Fyrsta verk er án gríns að fá mér lýsi og tékka á Vísi“ Atvinnulíf Reikna með tæplega þrjátíu milljarða minni fjárfestingu í Carbfix Viðskipti innlent Adidas og Ye sættast Viðskipti erlent Fleiri fréttir Viðræðum slitið um samruna Samkaupa, Heimkaupa og Orkunnar Hagnaður Arion banka eykst um tæpa tvo milljarða Auknar líkur á annarri vaxtalækkun Bein útsending: Haustfundur Landsvirkjunar Ráðnir forstöðumenn hjá OK Reikna með tæplega þrjátíu milljarða minni fjárfestingu í Carbfix Verðbólga hjaðnar en kílómetragjaldið verður tekið inn í mælingu Ragnar, Pálmar og Haraldur til Verna Skellt í lás í Sambíóinu í Keflavík í kvöld Samkeppniseftirlitið í sáttaviðræðum við Festi Hlutdeildarlán dugðu fyrir 61 íbúð 97 brautskráðust frá HR Fundurinn virðist ekki hafa aukið trú fjárfesta Furðulegt að gjaldtaka taki ekki mið af styrkleika Fjögur erlend fyrirtæki keppa um rekstur Fríhafnarinnar Hagnaður dróst saman um þriðjung og skoða hlutafjáraukningu Bein útsending: Kynna afkomuna og fara nánar yfir breytingarnar Breki áfram formaður Bjarmi sest í stjórnina og Trausti tekur við Tekur við formennsku í hugverkaráði Samtaka iðnaðarins Framkvæmdir hafnar við Búrfellslund Nikótínpúðar gætu hækkað um 300 kall með nýju gjaldi Ætla að sækja einn og hálfan milljarð frá skemmtiferðaskipum Vaxtatekjur Íslandsbanka drógust saman milli ára Fjögur félög Bergvins gjaldþrota Gera langtímasamning við eitt stærsta fyrirtæki Noregs Guðjón og Kristinn Þór nýir sviðsstjórar hjá VSB Fimm milljarðar í tekjur af vöxtum á mánuði Skerða líka raforku fyrir norðan og austan Miklu fleiri vilja hlutdeildarlán en fá Sjá meira