Fjórtán stuttmyndir frumsýndar Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 1. september 2016 09:30 Stilla úr stuttmyndinni Helga. Myndin fjallar um Helgu, nýfráskilna, einstæða móður á fertugsaldri sem tekst á við amstur hversdagsleikans eftir skilnað.
Fjórtán íslenskar stuttmyndir hafa verið valdar til þátttöku á kvikmyndahátíðinni Reykjavík Film Festival í ár. Meðal myndana er Helga í leikstjórn Tinnu Hrafnsdóttur. „Helga er fyrsta stuttmyndin mín. Ég framleiddi hana sjálf, skrifaði handritið og leikstýrði og fékk hóp af frábæru fólki til að leggja mér lið við að gera hana. Hún fjallar um Helgu, nýfráskilda, einstæða móður á fertugsaldri sem tekst á við amstur hversdagsleikans eftir skilnað. Dag einn, þegar minningar úr barnæsku hennar sækja að, horfist hún í augu við sjálfa sig og hvað það er sem mestu máli skiptir í lífinu. Handritið er byggt á æskuminningum konu sem deildi með mér ákveðinni upplifun úr sinni æsku og mér fannst falleg, konu sem ég met mikils,“ segir Tinna um kveikjuna að myndinni. „Tvær konur leika Helgu, Viðja Dís Ísfeld Rögnvaldsdóttir leikur hana unga og Guðrún Eva Mínervudóttir fullorðna. Þær hafa báðar svipaða útgeislun sem manneskjur og einstaka að mínu mati, auk þess sem þær eru mjög líkar í útliti. Það var heiður að fá að leikstýra þeim og ég er mjög ánægð með útkomuna hjá þeim báðum.“ Einnig verður efnt til sérstakrar sýningar á stuttmyndinni Heiti potturinn á elliheimilinu Grund en myndin er eftir Hörpu Fönn Sigurjónsdóttur. Myndirnar eru venju samkvæmt jafn fjölbreyttar og þær eru margar og fjalla um allt frá vináttu, lífi án tækni, foreldrahlutverkinu og krefjandi vinnuaðstæðum íslenskra bænda. Um frumsýningu hérlendis er að ræða á öllum myndunum en bæði er um leiknar og heimildarmyndir að ræða. Dómnefnd velur bestu myndina úr flokki leikinna mynda og hlýtur leikstjóri hennar viðurkenningu kennda við Thor Vilhjálmsson. Tinna segir það hafa mikla þýðingu að vera með í stuttmyndadagskrá hátíðarinnar og segir stöðu stuttmynda hér á landi góða. „Mér finnst fleiri vera farnir að gera stuttmyndir í dag, enda geta þær opnað svo margar spennandi leiðir fyrir leikstjóra sem eru að byrja, sérstaklega ef þær komast inn á mikilvægar kvikmyndahátíðir erlendis. Sama hvort maður ert hámenntaður eða ekki, í hvaða fagi sem er, þá eru verkin, það sem maður skilar af sér, mikilvægasti vitnisburðurinn um hæfni manns og getu.“ Dagskrá RIFF hefst þann 29. september næstkomandi og nánar er hægt að fræðast um hátíðina og dagskrá hennar á vefsíðunni Riff.is. Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 1. september.
Bíó og sjónvarp RIFF Mest lesið Vörur sem flugfreyjur kaupa í Bandaríkjunum Lífið Stefán Einar og Sara Lind selja parhúsið Lífið „Þarna brotnaði ég bara niður og grét og grét“ Lífið Adolescence: Börn ekki lengur örugg ein inni í herbergi Lífið Stjörnulífið: Eddan, rauðar blúndur og afmæli í París Lífið VÆB-bræður fyrstir á svið í Eurovision Lífið Bjarni Ben lét sig ekki vanta á Fjallabak Menning Rekur heimili fyrir unglingsmæður í Kenía fyrir hálfa milljón á mánuði Lífið Richard Chamberlain er látinn Lífið „Þetta má ekki vera feimnismál“ Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýdd stikla Black Mirror Nolan sagður stefna á tökur á Íslandi Ljósbrot besta myndin en Snerting með flest verðlaun Happy Gilmore snýr aftur Harpa kvótadrottning aftur á skjáinn Ólafur Darri og félagar framleiða sína fyrstu teiknimynd Anora sigurvegari á Óskarnum Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein Sjá meira
Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein