Lífið

James Corden fer á kostum í nýrri auglýsingu Apple

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bretinn góður að vanda.
Bretinn góður að vanda.
Bretinn James Corden fer á kostum í nýrri auglýsingu Apple þar sem verið er að kynna tónlist Apple. Þar bregður hann sér í hlutverk David Bowie, Spice Girls, Pharrell Williams og Slash.

Corden er að reyna selja forsvarsmönnum Apple hugmyndir sínar varðandi Apple Music og falla þær ekki vel í kramið á markaðsfólki fyrirtækisins.

Auglýsingin hefur slegið í gegn eins og flest sem þessi maður kemur nálægt en hér að neðan má horfa á hana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×