Villan snérist um húsaleigu Sæunn Gísladóttir skrifar 30. september 2016 13:58 Mánaðarbreyting húsaleigu vísitölu í september er 0,48 prósent, en hefði verið 0,21 prósent án villu Hagstofunnar. Vísir/GVA
Hafstofan hefur birt leiðréttingu vegna mistaka á útreikningi vísitölu neysluverðs. Fram kemur í henni að reiknuð húsaleiga hafi verið vanmetin. Mánaðarbreyting húsaleigu vísitölu í september er 0,48 prósent, en hefði verið 0,21 prósent án villu Hagstofunnar. Mismunurinn er 0,27 prósentustig. Áhrif á allan almenning eru hverfandi og verða fæstir lántakendur varir við breytinguna nema að litlu leyti segir í tilkynningu. Eins og fram kom í fréttatilkynningu Hagstofu Íslands í gær um vísitölu neysluverðs í september er hluti af hækkun reiknaðrar húsaleigu tilkominn vegna leiðréttingar á þeim lið vístölunnar. Hagstofan tekur málið mjög alvarlega.Sjá einnig: Hagstofan vanreiknaði vísitölu neysluverðs í sex mánuði: Áhrif mistakanna hlaupa á milljörðumFrá og með mars 2016 og til og með september 2016 var reiknuð leiga vanmetin. Það hefur nú verið lagfært. Leiðréttingin á rætur að rekja til mistaka sem urðu til þess að reiknuð leiga hliðraðist svo að áhrif verðbreytinga mældust með eins mánaðar tímatöf. Ekki er um að ræða uppsöfnuð áhrif heldur hliðrun á breytingum um einn mánuð í senn. Án þessarar villu hefði mánaðarbreyting vísitölunnar nú í september verið 0,21% í stað 0,48%. Hagstofa Íslands bregst við með því að leiðrétta liðinn og með því að upplýsa notendur eins fljótt og mögulegt er. Það var gert um leið og frétt um vísitölu neysluverðs í september var birt á vef Hagstofunnar. Niðurstöður útreiknings eru leiðréttar í einu mæligildi en eldri gildum verður ekki breytt. Því verður ekki séð að breytingar verði á skuldbindingum aftur í tímann.
Mest lesið Úrelt kerfi: „Síðan kom bara einhver bíll og tæmdi allt“ Atvinnulíf Viðræðum slitið um samruna Samkaupa, Heimkaupa og Orkunnar Viðskipti innlent Sorp: Fólk að hoppa niður plastið í tunnunum til að þjappa því Atvinnulíf Hagnaður Arion banka eykst um tæpa tvo milljarða Viðskipti innlent Auknar líkur á annarri vaxtalækkun Viðskipti innlent „Ekkert ósvipaður leikur og menn léku í bönkunum fyrir bankahrun“ Atvinnulíf „Fyrsta verk er án gríns að fá mér lýsi og tékka á Vísi“ Atvinnulíf Skellt í lás í Sambíóinu í Keflavík í kvöld Viðskipti innlent Reikna með tæplega þrjátíu milljarða minni fjárfestingu í Carbfix Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar en kílómetragjaldið verður tekið inn í mælingu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Viðræðum slitið um samruna Samkaupa, Heimkaupa og Orkunnar Hagnaður Arion banka eykst um tæpa tvo milljarða Auknar líkur á annarri vaxtalækkun Bein útsending: Haustfundur Landsvirkjunar Ráðnir forstöðumenn hjá OK Reikna með tæplega þrjátíu milljarða minni fjárfestingu í Carbfix Verðbólga hjaðnar en kílómetragjaldið verður tekið inn í mælingu Ragnar, Pálmar og Haraldur til Verna Skellt í lás í Sambíóinu í Keflavík í kvöld Samkeppniseftirlitið í sáttaviðræðum við Festi Hlutdeildarlán dugðu fyrir 61 íbúð 97 brautskráðust frá HR Fundurinn virðist ekki hafa aukið trú fjárfesta Furðulegt að gjaldtaka taki ekki mið af styrkleika Fjögur erlend fyrirtæki keppa um rekstur Fríhafnarinnar Hagnaður dróst saman um þriðjung og skoða hlutafjáraukningu Bein útsending: Kynna afkomuna og fara nánar yfir breytingarnar Breki áfram formaður Bjarmi sest í stjórnina og Trausti tekur við Tekur við formennsku í hugverkaráði Samtaka iðnaðarins Framkvæmdir hafnar við Búrfellslund Nikótínpúðar gætu hækkað um 300 kall með nýju gjaldi Ætla að sækja einn og hálfan milljarð frá skemmtiferðaskipum Vaxtatekjur Íslandsbanka drógust saman milli ára Fjögur félög Bergvins gjaldþrota Gera langtímasamning við eitt stærsta fyrirtæki Noregs Guðjón og Kristinn Þór nýir sviðsstjórar hjá VSB Fimm milljarðar í tekjur af vöxtum á mánuði Skerða líka raforku fyrir norðan og austan Miklu fleiri vilja hlutdeildarlán en fá Sjá meira