Kiel vann í Danmörku | Füchse Berlin gerði góða ferð til Frakklands Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 9. október 2016 17:01 Alfreð Gíslason vísir/getty
Kiel lagði Bjarringbro-Silkeborg í Meistaradeild Evrópu í handbolta á útiveli 28-25 í dag.Alfreð Gíslason þjálfar Kiel sem virtist ætla að slátra danska liðinu í fyrri hálfleik en Bjerringbro-Silkeborg skoraði fimm síðustu mörk fyrri hálfleiks og minnkaði forystu Kiel í tvö mörk, 9-11. Kiel var með yfirhöndina allan seinni hálfleikinn en náði aldrei að slíta danska liðið almennilega af sér og þurfti að hafa verulega fyrir sigrinum. Danska liðið minnkaði muninn í tvö mark þegar mínúta var til leiksloka. Blazenko Lackovic skoraði í kjölfarið eftir leikhlé Alfreðs og tryggði Kiel endanlega sigurinn. Lukas Nilsson skoraði 8 mörk fyrir Kiel og Nikola Bilyk 7. Allan Espersen og Johana Hansen skoruðu sex mörk hvor fyrir danska liðið. Fyrr í dag tapaði Holstebro sem Vignir Svavarsson leikur með fyrir HC Motor Zaporozhye í Úkraínu 34-28 í Meistaradeildinni. Vignir skoraði þrjú mörk í leiknum úr jafn mörgum skotum og var einu sinni rekinn útaf með 2 mínútur. Holstebro átti aldrei möguleika í leiknum og var 19-10 undir í hálfleik. Füchse Berlin stendur vel að vígi eftir 25-22 sigur á Chambery Savoie Handball í Frakklandi í dag í EHF-bikarnum. Refirnir frá Berlin sem Erlingur Richardsson þjálfar voru 11-7 yfir í hálfleik. Hans Lindberg var markahæstur hjá Refunum með 5 mörk. Bjarki Már Elísson skoraði 2 mörk úr jafn mörgum skotum.
Handbolti Mest lesið Dæmdir í kyrrþey og fá ekki að segja sína hlið Sport Martin fékk óvænt símtal á fæðingardeildinni Körfubolti Kynntu nýtt merki KR Sport Stórmeistara vísað úr móti fyrir að nota símann sinn Sport Eiginkona Kyle Walker sækir um skilnað Enski boltinn Allt bendir til þess að Liverpool missi Trent í sumar Enski boltinn Andrea setur met á EM í dag: „Við stefnum á fyrsta sætið“ Sport Labbar mest af öllum í ensku úrvalsdeildinni Enski boltinn Gaz-leikur Pavels: „Þeir geta hætt að vera litli Höttur frá Egilsstöðum“ Körfubolti Árni tekur við Fylki af Rúnari Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sandra í landsliðinu þremur mánuðum eftir barnsburð Aron Dagur í Kópavoginn Allt jafnt á Ásvöllum Selfoss upp fyrir Stjörnuna Slæmt gengi Magdeburg í Evrópu heldur áfram Óaðfinnanleg Elín Klara skaut Haukum upp í þriðja sætið Uppgjörið: Fram - ÍBV 29-20 | Öruggur heimasigur Landsliðshetjan í áfalli: Ég skelf öll „Stór partur af mér sem persónu“ „Við vorum bara niðurlægðir“ „Æðislegt að sjá svona marga Íslendinga sem halda með okkur“ Þorsteinn Leó: Ég sá að stúkan var hálf blá Óskar Bjarni: Bara fúll að hafa ekki unnið Guðmundur Bragi og Stiven á sigurbraut Uppgjörið: FH - Gummersbach 21-40 | Lærisveinar Guðjóns Vals sýndu enga miskunn Elvar og Arnar í toppmálum í riðli Vals Uppgjörið: Valur - Porto 27-27 | Ótrúlegir Valsmenn náðu að landa stigi „Ég held að þetta sé það besta sem gat komið fyrir“ „Verið að selja Gummersbach-treyjur á svarta markaðnum í Eyjum“ Guðjón Valur fór með liðið sitt í sund og gaf þeim bragðaref Óvænt nýr vinstri hornamaður í íslenska landsliðinu Tveir Valsmenn valdir í færeyska landsliðið Kolstad í undanúrslit Þjálfari Janusar Daða tekur við sænska landsliðinu Svona var blaðamannafundurinn vegna Evróputvennunnar í Krikanum Allt varð vitlaust í handboltaleik: Einn bitinn og hrækt á þjálfara Berlínarrefirnir völtuðu yfir Rhein-Neckar Löwen Aronslausir FH-ingar unnu nýliðana Jafnt í spennandi Íslendingaslag Ágúst Jóhannsson: Ég var smeykur Sjá meira