Milljónum manna sagt að forða sér Guðsteinn Bjarnason skrifar 7. október 2016 07:00 Í bænum Delray Beach voru þessir menn að byrgja glugga og dyr veitingastaðar sem þeir reka þar. Nordicphotos/AFP
Íbúar á austurströnd Flórída, Georgíu og Suður-Karólínu í Bandaríkjunum voru í gær að búa sig undir hrikalegar hamfarir þegar fellibylurinn Matthías kemur þangað. Stjórnvöld í þessum þremur ríkjum Bandaríkjanna sögðu meira en tveimur milljónum manna að forða sér frá heimilum sínum. „Farið burt,“ sagði Derrick Henry, borgarstjóri í Daytona Beach á Flórída. „Ekki hafa áhyggjur af eigum ykkar fyrr en seinna. Hugsið um líf ykkar núna. Þið eigið aðeins eitt líf.“ Rick Scott, ríkisstjóri í Flórída, tók enn dýpra í árinni: „Þetta er alvarlegt,“ sagði hann. „Þessi stormur mun drepa ykkur. Tíminn er að renna út.“ Víða mátti sjá fólk byrgja glugga og dyr bæði á heimilum og fyrirtækjum. Fjöldi fólks ákvað að fara burt til ættingja eða annað þar sem hægt væri að fá húsaskjól á meðan ósköpin gengju yfir. Fellibylurinn hefur þegar valdið miklum skaða á Haítí, Kúbu og Bahamaeyjum og var búist við honum að ströndum Flórída seint í gærkvöld eða nótt. Á Haítí kostaði hann meira en hundrað manns lífið og eyðilagði tugi þúsunda heimila.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Fylgi Sjálfstæðisflokksins aldrei mælst minna Innlent Kurteisar og fremur óspennandi kappræður Erlent Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Erlent Netanyahu heitir hefndum Erlent Gestur greiðir ekki krónu þó að pallaolía hafi hellst í bílinn Innlent Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Erlent „Með því alvarlegra sem ég hef séð frá Vinnueftirlitinu“ Innlent Leggja til neyðaraðgerðir til að bregðast við „ófremdarástandi“ Innlent Fleiri fréttir Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Kurteisar og fremur óspennandi kappræður Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Sjá meira