Lenda geimfari á Mars á morgun Samúel Karl Ólason skrifar 18. október 2016 15:00 Vísir/EPA
Geimferðastofnun Evrópu, ESA, vinnur nú að því að lenda geimfari á yfirborði plánetunnar Mars á morgun. Geimfarið Schiaparelli sleit sig frá móðurskipinu á sunnudaginn og er því ætlað að sýna fram á notkunargildi lendingartækninnar sem notast er við. Það mun einnig sinna því rannsóknarverkefni að kanna rykstorma á yfirborði Mars eins og lengi og rafhlöður farsins endast. Talið er að það verði í tvo til fjóra mars-daga, sem eru um 40 mínútum lengri en dagarnir hér á Jörðinni. Um mjög mikilvægt skref fyrir ESA er að ræða og er það liður í öðrum geimferðum til Mars í framtíðinni.Móðurskip Schiaparelli, ExoMars Trace Gas Orbiter eða TGO, mun verða notað til að rannsaka andrúmsloft Mars úr sporbraut. Geimvísindastofnun Bandaríkjanna, NASA, hefur lent sjö förum á Mars, en ESA engu. Geimvísindastofnun Rússlands, Roscosmos, kemur einnig að Schiaparelli verkefninu. Þá stendur til að lenda vélmenni á Mars árið 2020. Vélmennið Opportunity frá NASA er í um 15 kílómetra fjarlægð frá áætluðum lendingarstað Schiaparelli og stendur til að nota vélmennið til að ná myndum af lendingunni á morgun. Hægt verður að fylgjast með útsendingu frá ESA sem hefst klukkan tuttugu mínútur í tólf á morgun. Einnig er hægt að fylgjast með textalýsingu ESA. Reiknað er með því að lendingarferli Schiaparelli muni hefjast um klukkan tuttugu mínútur í eitt. Það tekur öll skilaboð níu mínútur og 48 sekúndur að berast frá Mars til Jarðarinnar. Leiðin sem Schiaparelli mun fara á leið sinni á yfirborð Mars. Tölvuteiknað myndband frá ESA af lendingarferli Schiaparelli.
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Fundu Diego heilan á húfi í heimahúsi Innlent Sagðist fjárhagslegur þræll móður barnsins sem hann braut á Innlent Svarar Kára fullum hálsi Innlent Kostaði umdeilda færslu á síðu flokks sem hann er hættur í Innlent Minnst þrír foreldrar verkfallsbarna hafi misst vinnuna Innlent Bein útsending: Skemmtilegustu kappræður kosningabaráttunnar Innlent Kortleggja neðanjarðarbyrgi vegna hótana Rússa Erlent Vill eyða vantrausti sem sé olía á eld rasisma Innlent Komin með skýra mynd af andláti móðurinnar Innlent Fleiri fréttir Þjóðhátíð í Nuuk vegna opnunar flugvallarins SpaceX skýtur kjarnorkuknúnum dróna út í geim Sprengdu tuttugu hús á tveimur mínútum Vildi pening í skiptum fyrir falleg orð í eyru Trumps Metárás á innviði með 188 drónum og fjórum skotflaugum Kortleggja neðanjarðarbyrgi vegna hótana Rússa Ítrekar hótanir um að hækka tolla á Kína, Mexíkó og Kanada Saksóknarar vilja Pelicot í 20 ára fangelsi Annarri ákærunni formlega vísað frá Stuðningur við Trump kostaði sambandið við Elon Saksóknari fellur frá ákærum á hendur Trump Ísrael og Hezbollah sögð við það að gera vopnahlé Ólöglegir og löglegir innflytjendur afar uggandi um framtíð sína Óvæntar niðurstöður í fyrri umferð kosninga í Rúmeníu Scholz verður kanslaraefni Jafnaðarmanna Konur í mestri hættu innan veggja heimilisins Boeing þota hrapaði í garð íbúðarhúss Hezbollah svarar Ísrael með umfangsmikilli loftárás Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Vargöldin á Haítí versnar hratt Tryggja þróunarríkjum 42 billjónir á ári með samkomulagi á COP29 Uppnám á COP29 er fulltrúar þjóða strunsuðu út Vill einn af höfundum „Project 2025“ við stjórn fjárlagaskrifstofu Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Leita móður ungabarns sem fannst látið á víðavangi Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Sjá meira