Lífið

Janet Jackson með barni

Birgir Olgeirsson skrifar
Janet Jackson.
Janet Jackson. Vísir/EPA
Bandaríska söngkonan Janet Jackson hefur staðfest að hún á von á sínu fyrsta barni. Greint er frá þessu á vef fréttastofu breska ríkisútvarpsins BBC en þar kemur fram að Jackson er fimmtíu ára gömul.

„Við þökkum guði þessa blessun,“ sagði hún í viðtali við People tímaritið þar sem hún sat fyrir mynd sem sýnir svo ekki verður um villst að hún sé með barni.

Vangaveltur um mögulegt barnalán söngkonunnar fóru af stað í apríl síðastliðnum þegar hún frestaði tónleikaferð sinni og sagði í kjölfarið í tilkynningu að hún vildi einblína á fjölskyldulíf með eiginmanni sínum Wissam al-Mana. 





Fleiri fréttir

Sjá meira


×