Bleika slaufan í ár táknar hið mikilvæga stuðningsnet Lilja Björk Hauksdóttir skrifar 12. október 2016 11:00 Þær Lovísa Halldórsdóttir og Unnur Eir Björnsdóttir eru hönnuðir Bleiku slaufunnar í ár en þær unnu hugmyndasamkeppni sem var haldin af Krabbameinsfélaginu í samstarfi við Félag íslenskra gullsmiða.
Þær Lovísa Halldórsdóttir og Unnur Eir Björnsdóttur eru hönnuðir Bleiku slaufunnar að þessu sinni en þær unnu hugmyndasamkeppni sem var haldin af Krabbameinsfélaginu í samstarfi við Félag íslenskra gullsmiða í apríl síðastliðnum um hönnun slaufunnar 2016. Þetta er í fimmta sinn sem Krabbameinsfélagið og Félag íslenskra gullsmiða halda samkeppni um hönnun Bleiku slaufunnar. „Hugmyndin bak við slaufuna okkar er sú að okkur langaði að einblína á þann sem stendur manni næst þegar erfiðleikar steðja að, það er mikilvægt að eiga góða að,“ segir Lovísa. „Bleika slaufan 2016 táknar stuðningsnetið sem mikilvægast er þeim konum sem greinast með krabbamein, fjölskylduna og samfélagið,“ bætir Unnur Eir við.Silfurslaufan er framleidd í tvö hundruð eintökum og er mikil vinna á bak við hverja.Ástæðan fyrir því að þær Lovísa og Unnur Eir tóku þátt í samkeppninni um hönnun Bleiku slaufunnar var fyrst og fremst sú að þær langaði að styrkja gott málefni. „Okkur fannst þetta tilvalið tækifæri fyrir okkur að vinna að skemmtilegu verkefni saman en við erum vanar samvinnunni því við kynntumst í gullsmíðanáminu og útskrifuðumst saman,“ segir Unnur Eir. Lovísa samsinnir því. „Við unnum vel og náið saman í náminu og var draumurinn sá að gera eitthvað saman í framtíðinni og þetta var tækifærið. Við vorum virkilega ánægðar með hugmyndina og þróunarstarfið okkar og vonuðumst svo innilega til þess að vera valdar.“ Spurðar hvort þær hafi átt von á því að þeirra hönnun að Bleiku slaufunni yrði valin segjast þær hafa verið mjög jákvæðar þegar þær skiluðu gripnum sínum inn en eftir því sem tíminn leið fóru þær að efast. „Þannig að það má segja að símtalið góða hafi komið skemmtilega á óvart. Eftir jákvæðni og neikvæðni til skiptis vorum við eðlilega í skýjunum með valið og þetta fór allt að verða raunverulegt. Alls konar pælingar fóru í gang, velja rétta bleika litinn á steininum, réttu keðjuna, útlit öskju og fleira.“Eins og margir vita eru tvær útgáfur af Bleiku slaufunni, annars vegar slaufan sem er barmnæla og hins vegar viðhafnarútgáfan sem er hálsmen úr silfri í takmörkuðu upplagi. Hönnuðirnir segjast hafa viljað ná því fram að hanna og smíða grip sem er táknrænn. „Við byrjuðum á hugmyndavinnu bæði varðandi þema slaufunnar og útlit. Margar skissur enduðu í ruslinu þar til sú rétta kom. Þá færðum við okkur yfir í framleiðsluferlið þar sem stóra spurningin var hvort hugmyndin væri gerleg. Eftir miklar pælingar og vangaveltur small þetta allt saman,“ segir Lovísa. „Við sáum um smíði og framleiðslu viðhafnarútgáfunnar, silfurslaufan er framleidd í tvö hundruð eintökum og er mikil vinna á bak við hverja slaufu. Við erum virkilega ánægðar með viðtökur viðhafnarslaufunnar í ár og er hún nánast að seljast upp,“ segir Unnur Eir. „Okkur langaði að gera skartgrip sem konur munu nota áfram sem við teljum að hafi tekist og okkur finnst gaman að sjá hve margir karlmenn bera barmnæluna líka í ár,“ segja gullsmiðirnir og hönnuðir Bleiku slaufunnar í ár, þær Lovísa Halldórsdóttir og Unnur Eir Björnsdóttir.
Mest lesið Stjörnulífið: „Virkilega slæm vika fyrir all my haters“ Lífið Inga Lind gengin út Lífið Kenningar á kreik eftir ásakanir um kynferðisbrot Al-Fayed Lífið Halda styrktartónleika fyrir fjölskyldu Kolfinnu Eldeyjar Lífið Lítil tengsl við okkar innri kynveru koma niður á kynlífinu Lífið Persónulegt áfall varð kveikjan að laginu Lífið Tekst á við lífið sem einhverf mamma með langveikt barn Lífið Kántrígoðsögnin Kris Kristoffersson látin Lífið Útilokar ekki að bjóða sig aftur fram Lífið „Það er galið að sjá fimm manna fjölskyldu sitja saman en öll í símanum“ Áskorun Fleiri fréttir Ekki lengur undir sérstöku eftirliti Draumadrengur Söndru og Hilmars kominn í heiminn Halda styrktartónleika fyrir fjölskyldu Kolfinnu Eldeyjar Kenningar á kreik eftir ásakanir um kynferðisbrot Al-Fayed Persónulegt áfall varð kveikjan að laginu Útilokar ekki að bjóða sig aftur fram Lætur nettröllin ekki hafa áhrif á sjálfsmyndina Stjörnulífið: „Virkilega slæm vika fyrir all my haters“ Inga Lind gengin út Tekst á við lífið sem einhverf mamma með langveikt barn Lítil tengsl við okkar innri kynveru koma niður á kynlífinu Kántrígoðsögnin Kris Kristoffersson látin 105 ára og syngur í kór - Sérrí og Baileys eftir æfingu Beverly Hills Cop-stjarnan John Ashton er látin Elti drauminn og flutti um borð í húsbíl Mamma byrjuð að undirbúa stúdentsveislu þegar fregn barst af falli Krakkatían: Nótur, bankar og geitur Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Sjá meira