Lífið

Kardashian dregur stefnu sína gegn slúðurmiðli til baka

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/AFP
Kim Kardashina hefur dregið stefnu sína gegn miðlinum MediaTakeOut.com til baka. Miðillinn hafði gefið í skyn að fjölskylda Kardashian hefði sett vopnað rán sem Kim varð fyrir í París á svið.

MediaTakeOut birti þrjár greinar á vef sínum þar sem mátti finna getgátur þess efnis að að Kim og móðir hennar Kris Jenner hefðu sviðsett ránið.

Greinarnar voru hins vegar teknar út eftir að Kim Kardashian höfðaði mál gegn miðlinum. Þá var leiðrétting birt á vefnum á mánudaginn.


Tengdar fréttir

Kim Kardashian rænd: Hvað gerðist í París?

Ljóst er að ræningjarnir komust í burtu með skargripi sem metnir eru á hundruð milljóna og er þeirra leitað. Margt er á huldu varðandi ránið en hér er farið yfir það sem er vitað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.