Daníel eftir skellinn í Síkinu: „Þetta var mjög absúrd“ Ólafur Haukur Tómasson í Síkinu á Sauðárkróki skrifar 27. október 2016 22:26 Daníel Guðni byrjar 1-3 með Njarðvík. vísir/vilhelm „
Það fór allt úrskeiðis hjá okkur,“ sagði Daníel Guðni Guðmundsson, þjálfari Njarðvíkinga, eftir stórtapið gegn Tindastól í Síkinu í kvöld. „Það gekk ekkert upp hjá okkur. Þeir ýttu okkur út úr öllu sem við ætluðum að gera sóknarlega og við vorum ekki að bregðast við því eins og við áttum að gera. Við gripum boltann alltof langt frá þeim stöðum sem við eigum að grípa hann, nýttum okkur ekki að þeir yfirdekkuðu okkur og við vorum alveg út í þessum leik,“ sagði Daníel. Njarðvíkingar lentu undir á öllum sviðum leiksins í kvöld og þar á meðal í fráköstum en Stólarnir áttu nær alla lausa bolta í leiknum. Sú staðreynd fór ekki vel í Daníel. „Það virðist ekki skipta miklu máli hvað við reynum að brýna á að það þurfi að stíga þá út því þeir taka jafn mörg sóknarfráköst og við tökum varnarfráköst í leiknum. Þetta var mjög absúrd og ekkert lið vinnur leik þannig,“ sagði hann. Stefan Bonneau átti stórleik í tapi Njarðvíkur gegn Stjörnunni í síðustu umferð en hann náði sér ekki á strik í kvöld og spilaði frekar lítið, af hverju var það? „Hann náði sér ekki á strik hérna í kvöld. Ég hélt honum bara frá fleiri mínútum í kvöld og ætluðum ekkert of geyst með hann því við vorum að tapa með þrjátíu, fjörtíu stigum og þarf ekki að láta hann hlaupa af sér öll horn,“ sagði Daníel Guðni Guðmundsson.
Dominos-deild karla Mest lesið „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport „Spiluðum mjög vel í dag“ Enski boltinn Dómara refsað vegna samskipta við Messi Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Körfubolti Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Körfubolti Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Fótbolti Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus Fótbolti Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar Handbolti Dagskráin í dag: Lengjubikar kvenna, úrvalsdeildin í keilu og NBA Sport Fleiri fréttir „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Martin komst í hóp þeirra gömlu og mjög góðu Popovich kemur ekki til baka á þessu tímabili Loksins fékk Lakers að sjá Luka eins og við þekkjum hann Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Uppselt á körfuboltalandsleikinn á morgun Ruglaðist á Tramadol og Toradol og féll á lyfjaprófi Slagur um stól formanns KKÍ LeBron með fjörutíu stig í fjarveru Doncic: „Hann storkar lögmálunum“ Fær ekki að spila á Íslandi vegna gamals dóms: „Ekki ógn við þjóðina“ Bætti skólamet pabba síns Undrið Wembanyama frá það sem eftir lifir leiktíðar Martin: Skemmtilegra að tryggja þetta fyrir fullri höll Uppgjör: Ungverjaland - Ísland 87-78 | Afleitur annar leikhluti mjög dýr Verður aðeins sá átjándi til að spila níutíu landsleiki Gætu tryggt EM sætið í kvöld: „Skrítin staða að vera í“ Fimm sigrar og eitt grátlegt tap í síðustu sjö landsleikjum Martins Fóturinn tekinn af körfuboltapabbanum kjaftfora Geta fagnað EM sæti þrátt fyrir tap: Fjórar leiðir inn á EM Stólarnir stríddu toppliðinu „Efri hlutinn gefur okkur smá andrými“ Uppgjörið: Hamar/Þór - Valur 83-89 | Valskonur tryggðu sér sæti í efri hlutanum Uppgjörið: Njarðvík - Þór Ak. 94-80 | Sigurganga Njarðvíkur heldur áfram Er von á öðru meistaraplani frá Baldri? Strákarnir á skólabekk fyrir Ungverjaleik Kyrie Irving vill spila með Áströlum á Ólympíuleikunum Tommi vildi ekki meiða Albert Guðmunds og Nablinn harður í horn að taka á vellinum Valdi flottasta búning deildarinnar „Þetta var bara ljótur körfuboltaleikur í alla staði“ Sjá meira