Fær Gylfi einhverjar tilnefningar í valinu á besta marki Swansea? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. október 2016 16:00 Mark Gylfa Þór Sigurðssonar á móti Arsenal 2014. Vísir/Getty
Næsti leikur Swansea City í ensku úrvalsdeildinni verður sá tvö hundraðasti hjá félaginu í efstu deild á Englandi. Swansea hefur skorað 241 mark í 199 leikjum og nú vill fólkið á samfélagsmiðlum Swansea City Football Club komast að því hvaða mark stuðningsmenn liðsins telji verða það besta hjá félaginu frá upphafi. Á fésbókarsíðu og Twitter-síðu Swansea City eru gestir beðnir um að tilnefnda fimm flottustu mörkin að þeirra mati. Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson hefur skorað 27 mörk fyrir Swansea í ensku úrvalsdeildinni eða fleiri en nokkur annar. Mörg þessara marka hafa verið af glæsilegri gerðinni og sum þeirra beint úr aukaspyrnu. Mark hans beint úr aukaspyrnu á móti Arsenal 9. nóvember 2014 hlýtur að koma sterklega til greina en auðvitað hafa leikmenn Swansea skoraði mörg glæsileg mörk. Nú er að sjá hvort mörk Gylfa fái einhverjar tilnefningar en það er að sjá að menn eru byrjaðir að gefa íslenska miðjumanninum atkvæði. Hver veit nema einhverjir íslenskir stuðningsmenn Swansea City noti nú tækifærið og komi Gylfa á blað. Það er hægt að gefa Gylfa atkvæði bæði á Twitter með myllumerkinu #Swans200 en eins inn á fésbókarsíðu Swansea City. Tvö hundraðasti leikur Swansea City í ensku úrvalsdeildinni verður á útivelli á móti Stoke City á næstkomandi mánudag.We've scored 241 goals in 199 #PL games. Let us know your top 5️⃣ strikes as we approach our 200th match!#Swans200 pic.twitter.com/Jk3qoCOS7j— Swansea City AFC (@SwansOfficial) October 24, 2016
Enski boltinn Mest lesið Klopp ráðinn til Red Bull en skýr klásúla í samningnum Fótbolti Skilaboðum lekið og Haaland ósáttur Fótbolti Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Enski boltinn Heimir hristir upp í hlutunum: „Ég vil gera þetta svona“ Fótbolti „Verð að líta á sjálfan mig sem KR-ing“ Fótbolti Draumur að rætast hjá bræðrunum Fótbolti Þorsteinn kynnti Bandaríkjafarana Fótbolti Kærasti Fallons Sherrock niðurbrotinn eftir sárt tap Sport Dómarar í ævilangt bann eftir kynlífsmyndband Fótbolti Hópurinn sem fer til Bandaríkjanna Fótbolti Fleiri fréttir Leikmaður Chelsea flutti aftur heim til mömmu og pabba Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Grealish: Ég hefði átt að fara með á EM Félögunum refsað en Jackson sleppur Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Ratcliffe um Ten Hag: „Ekki mín ákvörðun“ „Þá er ég mjög heimskur þjálfari“ Samherji Stefáns Teits í átta leikja bann fyrir að bíta mótherja Sjá meira