Senda á Eyjólf til Noregs eftir þrjár vikur Jakob Bjarnar skrifar 9. nóvember 2016 16:34 Elva Christina er gersamlega niðurbrotin og hefur grátið í allan dag, eða allt síðan henni var kynnt niðurstaðan. visir/anton brink
Hæstiréttur staðfestir niðurstöðu héraðsdóms í máli ungs drengs sem norsk barnaverndaryfirvöld vilja kalla til sín. Stundin greindi frá þessu nú fyrir stundu. Vísir hefur fjallað ítarlega um málið sem snýst um það að Elva Christina, móðir fimm ára gamals drengs, var svipt forræði yfir syni sínum Eyjólfi úti í Noregi. Til stóð og til stendur að senda hann til vandalausra norskra í fóstur. Amma drengsins og Elva flúðu til Íslands í kjölfar þess úrskurðar. Faðir drengsins er búsettur úti í Danmörku og hefur ekki haft bein afskipti af málinu til þessa. Elvu Christinu var kynnt þessi niðurstaða í dag og segist hún hafa grátið samfleytt síðan hún fékk þessi erfiðu tíðindi.Kvíðir því að segja syni sínum hvað stendur til „Ég er alveg í rusli. Ég hef eiginlega bara grátið síðan ég fékk að vita þetta. Ég fékk símtalið í dag. Að það væri búið að dæma í þessu. Þetta þýðir það að þau eru að fara að koma og ná í hann 4. desember,“ segir Elva Christina og það fer ekkert á milli mála að hún er alveg niðurbrotin. Hún telur nú öll sund lokuð þó Bragi Guðbrandsson hjá Barnaverndarstofu sé að vinna að samkomulagi við norsk barnaverndaryfirvöld um að flytja málið til Íslands. Elva Christina segist hins vegar mjög svartsýn á að eitthvað slíkt sé inni í myndinni þegar norsku barnaverndaryfirvöldin, sem eru ákaflega stíf á meiningunni, muni fallast á slíkar tilhliðranir. „Ég veit að þegar þau hafa gengið svona langt og unnið mál þá verða þau ekki við slíkum óskum. Ég á mjög bágt með að trúa því. Það særir mig mest að þetta þýðir að ég þarf að fara að segja honum hvað er í gangi og þetta brýtur alveg í mér hjartað.“Ekkert heyrist frá ráðuneytinu Samstöðufundur hefur verið haldinn á Austurstræti vegna málsins og fjölmargir, innan sem utan þings, hafa skorað á Ólöfu Nordal innanríkisráðherra að láta málið til sín taka. En Elva segist engan stuðning hafa fengið úr þeirri áttinni, hún hefur ekkert heyrt frá ráðuneytinu. „Þetta var svo mikið sjokk, ég hélt svo í vonina. Þetta var komið svona langt. Og svo fæ ég nú að vita þetta þremur vikum áður en hann á að fara. Ég er gersamlega í rusli,“ segir Elva Christina.
Tengdar fréttir Senda á drenginn út til Noregs eigi síðar en 4. desember Blásið hefur verið til samstöðufundar og búið er að áfrýja málinu til hæstaréttar. 21. október 2016 14:20 „Ég veit ekki hvað ég geri ef þau taka hann“ Hin tvítuga Elva Christina sér fram á að fimm ára gamall sonur hennar verði dæmdur af henni og sendur til Noregs í 14 ár. 4. október 2016 11:30 Útilokar ekki að íslensk barnaverndaryfirvöld hlutist til um mál sonar Elvu Christinu Bragi Guðbrandsson forstjóri Barnaverndarstofu útilokar ekki að barnaverndaryfirvöld hér á landi hlutist til um mál fimm ára gamals íslensks drengs en í dag úrskurðaði Héraðsdómur Reykjavíkur að afhenda skuli norskum barnaverndaryfirvöldum drenginn. 5. október 2016 19:29 Reyna allt svo Eyjólfur verði ekki sendur burt Íslensk barnaverndaryfirvöld reyna nú að ná samningum við norsk yfirvöld svo íslenski drengurinn Eyjólfur Kristinn Elvuson verði ekki sendur til Noregs á fósturheimili. 26. október 2016 07:00 Elvu Christinu ber að afhenda Norðmönnum drenginn Senda ber fimm ára gamlan drenginn í fóstur til Noregs innan tveggja mánaða. 5. október 2016 10:59 Dómarinn telur drengnum engin hætta búin í Noregi Í dómi þar sem Elvu Christinu er gert að senda son sinn fimm ára til Noregs er ekki litið til vilja drengsins. 7. október 2016 13:30 Ragnheiður vill að Ólöf hlutist til um málefni drengsins sem senda á til Noregs "Í þessum töluðu orðum er verið að brjóta mannréttindi á litlum fimm ára dreng,“ segir Ragnheiður Ríhkharðsdóttir. 5. október 2016 14:03 Mest lesið Vanþekking ráðherra sé áhyggjuefni Innlent Ásthildur Lóa setur húsið umdeilda á sölu Innlent Deildi hernaðarupplýsingum í öðru spjalli með konu sinni og bróður Erlent „Þeir liggja hérna eins og hráviði út um allt“ Innlent Ræddi við foreldra og hætta við miklar hækkanir Innlent Segja samfélagsmiðla valda auknu kvenhatri og rasisma í skólum Erlent Margar fjölskyldur fastar í fátækt svo árum skiptir Innlent Móðirin hafi þurft að sárbæna hann til að hitta barnið á spítala Innlent Segjast hafa uppgötvað nýjan lit sem ekki hefur sést áður Erlent Samsetning lyfja gæti komið í veg fyrir þúsundir hjartaáfalla Erlent Fleiri fréttir Vanþekking ráðherra sé áhyggjuefni Margar fjölskyldur fastar í fátækt svo árum skiptir Ásthildur Lóa setur húsið umdeilda á sölu Gagnrýnir dómsmálaráðherra fyrir að fara með rangt mál um dvalarleyfi Trump-stjórnin virðist ekki hafa neitt plan Skrítið ef ríkið hefur ekki áhuga á Háholti Maðurinn er laus úr haldi „Við megum mótmæla því að verið sé að drepa saklaust fólk“ Ræddi við foreldra og hætta við miklar hækkanir Einn í haldi lögreglu vegna konu með skerta meðvitund Falla frá gjaldskrárhækkunum og árásir á tímum vopnahlés Bjóst ekki við að ríkisstjórnin héldi meirihluta Viðbragð lögreglu og sjúkraflutningamanna í nágrenni Selfoss Vestfjarðaleiðin verði Hringvegur númer tvö Ferill fyrrum forsætisráðherra og verðlaunaður sagnfræðingur í Sprengisandi Rólegheitaveður á páskadag Ökumaður undir aldri í bílaeltingarleik við lögreglu Mótmæla brottvísun Oscars Gagnrýnir brattar hækkanir: „Þetta er bara dapurlegt“ Eitthvað búi að baki „meira en þrá hans eftir friði“ Engin tengsl milli þolenda og gerenda Tortryggni í garð Rússa og ungmennaráð sem fékk ekkert að segja Móðirin hafi þurft að sárbæna hann til að hitta barnið á spítala Handtekinn á Húsavík með tölvert magn fíkniefna Bora tilraunaholu til að framleiða heitt vatn á höfuðborgarsvæðinu „Það er eitthvað við það að vera hérna“ Koma strandaglópunum heim í kvöld Áhyggjuefni að brotaþolar treysti ekki dómstólum Unglingur stakk óboðinn gest í bakið til að verja fjölskyldumeðlim Fólskuleg líkamsárás og strandaglópar í suðri Sjá meira
Senda á drenginn út til Noregs eigi síðar en 4. desember Blásið hefur verið til samstöðufundar og búið er að áfrýja málinu til hæstaréttar. 21. október 2016 14:20
„Ég veit ekki hvað ég geri ef þau taka hann“ Hin tvítuga Elva Christina sér fram á að fimm ára gamall sonur hennar verði dæmdur af henni og sendur til Noregs í 14 ár. 4. október 2016 11:30
Útilokar ekki að íslensk barnaverndaryfirvöld hlutist til um mál sonar Elvu Christinu Bragi Guðbrandsson forstjóri Barnaverndarstofu útilokar ekki að barnaverndaryfirvöld hér á landi hlutist til um mál fimm ára gamals íslensks drengs en í dag úrskurðaði Héraðsdómur Reykjavíkur að afhenda skuli norskum barnaverndaryfirvöldum drenginn. 5. október 2016 19:29
Reyna allt svo Eyjólfur verði ekki sendur burt Íslensk barnaverndaryfirvöld reyna nú að ná samningum við norsk yfirvöld svo íslenski drengurinn Eyjólfur Kristinn Elvuson verði ekki sendur til Noregs á fósturheimili. 26. október 2016 07:00
Elvu Christinu ber að afhenda Norðmönnum drenginn Senda ber fimm ára gamlan drenginn í fóstur til Noregs innan tveggja mánaða. 5. október 2016 10:59
Dómarinn telur drengnum engin hætta búin í Noregi Í dómi þar sem Elvu Christinu er gert að senda son sinn fimm ára til Noregs er ekki litið til vilja drengsins. 7. október 2016 13:30
Ragnheiður vill að Ólöf hlutist til um málefni drengsins sem senda á til Noregs "Í þessum töluðu orðum er verið að brjóta mannréttindi á litlum fimm ára dreng,“ segir Ragnheiður Ríhkharðsdóttir. 5. október 2016 14:03