Melania Trump klæddist Ralph Lauren á kosningakvöldinu
Ritstjórn skrifar
Melania mætti á sviðið ásamt Donald þegar hann hélt ræðu sína eftir að hann sigraði.Mynd/Getty
Í nótt vann Donald Trump forsetakosningar Bandaríkjanna. Þrátt fyrir að það hafi ekki farið fram hjá neinum þá er vert að vekja athygli á eiginkonu hans, Melaniu Trump. Næsta forsetafrú Bandaríkjanna klæddist glæsilegum hvítum Ralph Lauren samfestingi þegar Trump fagnaði sigrinum.
Samfestingurinn kostar 3.990 dollara eða 440 þúsund krónur. Melania klæddist reglulega Ralph Lauren á meðan framboðið stóð yfir, því kemur ekki á óvart að hún hafi valið þennan klassíska bandaríska hönnuð á stóra kvöldinu.