Biggi á Airwaves: Dáleiðandi stelpurokk, tvífarar og íslenskir prinsar Birgir Örn Steinarsson skrifar 5. nóvember 2016 14:57 Greinahöfundur hefur lent í ýmsum uppákomum á Airwaveshátíðinni í ár. Vísir „
Þú ert alveg eins og Jamie Redknapp,“ segir drengur sem er að reyna sníkja sígó af mér fyrir utan Hörpu. Málið er að ég reyki ekki, heldur veipa. „Hver?,“ spyr ég og sé strax eftir því. Ég er að reyna komast á tónleika Reykjavíkurdætra í Silfurbergi áður en þeir klárast. „Hetjan mín. Hann bjargaði unglingsárum mínum. Hann spilaði með Liverpool. Þið eru tvífarar! Áttu ekki sígó, eða? Ég reyki sko ekki, bara þegar ég er fullur!“ Ég asnast til þess að draga smók af veip-pípunni minni á meðan ég kinka kolli. „Hvað er þetta? Má ég fá smók af þessu,“ segir hann og teygir sig í græjuna. „Sko, ég er að reyna hrósa þér sko. Hann er geðveikt myndarlegur maður,“ segir drengurinn á meðan reykurinn flæðir úr vitum hans. Ég teygi mig aftur í pípuna. „Takk fyrir það,“ segi ég. Gríp græjuna og reyni að sniglast fram hjá. Hann heldur áfram að tala við mig á meðan. Þessi stutta leið frá andyri Hörpu upp að Silfurbergi er óvenju löng vegna fólksfjöldans. Þegar ég loksins kemst að salnum heyri ég rafbassatrommuna slá fjögur slög. „Takk fyrir,“ segir einhver í hljóðnemann og áhorfendur fagna kröftuglega. Svo kvikna ljósin. Allt búið. Mér hefur enn og aftur tekist að missa af því að sjá Reykjavíkurdætur á sviði. Ég veiði nokkra vini mína úr þvögunni sem kemur út úr salnum. Næst á dagskrá er bandaríska rokksveitin Warpaint.Tónlist stúlknanna í Warpaint er ekkert endilega skreytt fallegustu melódíum í heimi.Vísir/Andri MarinóWarpaint Tónlist stúlknanna í Warpaint er ekkert endilega skreytt fallegustu melódíum í heimi. Satt best að segja er söngurinn frekar einsleitur og fáar nótur í laglínum. Sjarmi Warpaint liggur nefnilega ekki í söngnum heldur í hrynjandanum og undirspilinu. Ég heyrði fyrst af þeim fyrir sex árum síðan þegar þær gáfu út plötuna The fool. Tónlistin er enn hrárri á sviði og yfirvegaðri. Þær voru að gefa út sína þriðju plötu Heads up sem ég hef ekki heyrt áður en fer beint á fóninn eftir þessa tónleika. Stelpurnar rótera á milli sín söng, bassa og gítar á meðan trommuleikarinn er ein sú þéttasta og svalasta sem ég hef séð lengi. Hún spilar í mynstrum og það er dáleiðandi að hlusta á hana og horfa. Gítarleikararnir spila líka bara einfaldar nótur og laglínur, aldrei hljóma. Warpaint eru hreint út sagt, afbragð.Tvífari númer tvö Eftir tónleikana rekumst við Dr. Páll Ragnar Pálsson félagi minn úr Maus á Kristján Frey - tvífara minn. Hvorugur okkar tengjum við að líkjast hvor öðrum en báðir okkar höfum nokkrum sinnum lent í aðstæðum þar sem við hittum fólk út í bæ, eigum við það samtal og áttum okkur svo á því að viðkomandi heldur að hann sé að tala við hinn. Hvorugur okkar hefur nokkurn tímann leiðrétt misskilninginn þegar hann kemur upp. “Þetta er fyrsta Airwaves hátíðin sem ég man eftir mér, þar sem ég er ekki að spila,” segir Kristján en hann trommar bæði með Reykjavík! og Prins Póló. „Nú? Ertu ekki með prinsinum á eftir?“ spyr ég. „Nei, hann ákvað að endurgera allt sjófið sitt með Árna úr FM Belfast.“ Algeng örlög hljóðfæraleikara sem eru í hljómsveit sólóartista hugsa ég, að vera skipt út fyrir tölvukubb. Það þarf engan endurskoðanda til þess að reikna það dæmi til enda. Þegar við mætum inn í Gamla Bíó er bandaríska söngkonan Frankie Cosmos að spila. Við erum greinilega snemma í því og um 20 mínútur þar til að Prinsinn á að fara á svið með nýja sjófið. Ég og Dr. Páll Ragnar göngum inn í salinn og gefum Frankie Cosmos kurteisislega tækifæri á að heilla okkur. Eftir um það bil 2 mínútur snýr Dr. Páll Ragnar sér að mér og segir; „Jáh… þetta er afskaplega venjuleg tónlist.“ Við brosum báðir, snúum okkur í 180 gráður og göngum aftur út úr salnum.Hvernig á að finna kærustuna þína í mannfjölda Við barinn hittum við Árna Hjörvar úr bresku hljómsveitinni The Vaccines. Hann er búinn að týna kærustunni sinni, henni Ásu Dýradóttur úr Mammút. Við tökum hann upp á okkar arma. Ég set mig í spekingslegar stellingar og ákveð að kenna honum töfratrixið um hvernig maður eigi að fara að því að finna kærustuna sína í mannþröng. „Ekki leita. Leyfðu henni að sjá um það. Stattu bara kyrr hér, við innganginn á salnum og hún mun birtast,“ segi ég og líður eins og Yoda. Árni lítur undarlega á mig. Tekur svo upp símann sinn og sendir Ásu sms.Sturla Atlas í stuði á miðvikudaginn.Vísir/Andri MarinóPrins Póló Ég ber þvílíka virðingu fyrir Svavari Pétri Eysteinssyni sem stökkbreytist í Prins Póló þegar hann setur upp pappakórónuna. Við höfum þekkst síðan að hann var feiminn nýbylgjurokkari í Breiðholtinu. Þá var hann hluti af hljómsveit sem ég man ekki einu sinni hvað hét. Alltaf fór hann sínar eigin leiðir og kærði sig kollóttan um vinsældir eða álit annarra. Hinn hrokafulli fortíðar ég var löngu búin að afskrifa hann sem mikilvæga einingu í bransanum. Svo allt í einu, 15 árum síðar, fór Svavar að verða betri og betri. Um það leyti sem hljómsveit hans Skakkamanage fór að skila af sér góðum afurðum hætti hún og skyndilega kom út fyrsta plata Pins Póló, Jukk. Restina þekkja allir og í dag á Svavar fleiri, stærri og eftirminnilegri slagara en ég gæti leyft mér að dreyma um. Mikið er gaman og gott að hafa rangt fyrir sér annað slagið. Giggið hans er æði. Lögin eru öll komin í litrík og kröftug FM Belfast klæði og það fer þeim vel. Árni Rúnar Hlöðversson er með honum á sviðinu og virðist vera mjög upptekinn bak við tölvuskjáinn. Svavar hefur fyrir vikið meira rými til þess að einbeita sér að því að trylla lýðinn með tilheyrandi popparatöktum. Það var ekki ein manneskja í húsinu sem stóð kyrr og allir komu hásir út. Gleðin skein af bulsugerðamanninum í lokin.Sturla Atlas Nasa er bara hálf fullt þegar Sturla Atlas koma sér fyrir á sviðinu. Kannski ekki skrítið þar sem þeir spiluðu fyrir troðfullum sal í Hörpu á miðvikudagskvöldið. Sigurbjartur Sturla, Logi Pedró og hinir eru skýrasta birtingarmynd nýju senunnar á Íslandi. Sú sena einkennist skýrt af því að snúa baki við þeirri sveimandi krúttbylgju sem kom Ísland á tónlistarkortið á sínum tíma. Hér eru engin áhrif frá Sigur Rós, Sykurmolunum, Björk, múm eða Ólafi Arnalds. Bara ekki baun. Áhrifin eru beint úr bandarískri síbylju og tónn Sturlu Atlas er það mikið í takt við nýjustu strauma og stefnur í poppheimum að þeir fá einhvern veginn að vera með í öllu. Eru til dæmis í hiphop-senunni þrátt fyrir að hér sé nú voða lítið rappað. Það merkilega við Sturlu Atlas er slagarafjöldi sveitarinnar. Það er rétt rúmt ár síðan sveitin lét fyrsta á sér kræla og salurinn syngur með 5 – 6 lögum sem hljóma öll eins og klassíkarar. Öryggið á sviðinu er líka algjört. Hér eru augljóslega fagmenn á ferð. Ef ég væri erlendur útsendari stórs plötufyrirtækis þá væri Sturla Atlas eina íslenska bandið úr hiphop-senunni sem ég myndi bjóða útgáfusamning. Þeir einir eru tilbúnir fyrir alþjóðamarkaðinn.Birgir Örn Steinarsson, betur þekktur sem Biggi í Maus, deilir Iceland Airwaves upplifun sinni með lesendum Vísis á meðan á tónlistarhátíðinni stendur.
Airwaves Tengdar fréttir Biggi á Airwaves: „Pabbi, er Emmsjé Gauti mannæta?“ Við dóttir mín erum á þeytingi í gegnum rigninguna í Vesturbænum. Það er þegar orðið dimmt enda klukkan er að verða sex. Uppáhaldið okkar, Emmsjé Gauti, er við það að hefja fyrstu off venue tónleika sína á þessari Airwaveshátíð á Kaffi Vest. 3. nóvember 2016 13:45 Biggi á Airwaves: Leiðinlegur listapoppari, fallegasta bumba í heimi og frumraun Aron Can á Airwaves Biggi sá Juliu Holter, Kött Grá Pjé, Aron Can og Beloji í gærkvöldi. 4. nóvember 2016 16:00 Mest lesið Dóri DNA og Magnea greiddu 126 milljónir fyrir einbýli í Skerjafirði Lífið Fengu aðstoð frá heimamanni: „Þannig að við séum ekki eins og hauslausar hænur“ Lífið Segir föður sinn hafa verið við hestaheilsu Lífið Hafði ekki hugmynd um að einstakt hjól sitt væri týnt Lífið Spila í fyrsta sinn á Þjóðhátíð Lífið „Frelsi til að gera allt sem þig langar til“ Tónlist Bjössi og Dísa skáluðu í nýja húsinu Lífið Hlátrasköll og bongótrommur á forsýningu Alheimsdraumsins Lífið Avowed: Í senn hefðbundinn og framúrskarandi hlutverkaleikur Leikjavísir Pétur og Elísabet tóku fallegt parhús í 101 í gegn Lífið Fleiri fréttir Hafði ekki hugmynd um að einstakt hjól sitt væri týnt Dóri DNA og Magnea greiddu 126 milljónir fyrir einbýli í Skerjafirði Spila í fyrsta sinn á Þjóðhátíð Fengu aðstoð frá heimamanni: „Þannig að við séum ekki eins og hauslausar hænur“ Segir föður sinn hafa verið við hestaheilsu Hlátrasköll og bongótrommur á forsýningu Alheimsdraumsins Mamma Gurru gríss gýtur í sumar Sepultura bætist við þéttsetið þungarokkssumar Bjössi og Dísa skáluðu í nýja húsinu Alheimsdraumurinn: Sveppa tókst það sem Pétri tókst ekki Katy Perry fer út í geim Pétur og Elísabet tóku fallegt parhús í 101 í gegn Vatnsdeigsbollur með Dúbaí-fyllingu: „Þið verðið að prófa“ Var farin að fá kvíðaköst þegar dóttirin bað um að fara í göngutúra Hugsi yfir reynslulausum sérfræðingum Gene Hackman og eiginkona hans fundust látin Einföld ráð fyrir glæsilegra heimili „Ég tala ekki einu sinni um þetta við vini mína“ Ása Steinars á von á barni Ástin blómstraði í karókí Michelle Trachtenberg er látin Kjósa ekki Fiennes heldur Brody vegna misskilnings Öllu tjaldað til í sjö ára afmæli Chicago Halla og Bjössi í Mottumars sokkunum í fyrsta sinn Steinhissa en verður Dumbledore Fluttu með alla fjölskylduna til Tene: „Nenni ekki að vera í þessari typpakeppni“ „Hann kann að dansa, maður minn!“ Skuggavaldið: Samsæriskenningum aldrei verið beitt svona áður Segir hlutverkið hafa bjargað lífi sínu Stöðugt spurðir hvers vegna þeir ættleiddu ekki bara Sjá meira
Biggi á Airwaves: „Pabbi, er Emmsjé Gauti mannæta?“ Við dóttir mín erum á þeytingi í gegnum rigninguna í Vesturbænum. Það er þegar orðið dimmt enda klukkan er að verða sex. Uppáhaldið okkar, Emmsjé Gauti, er við það að hefja fyrstu off venue tónleika sína á þessari Airwaveshátíð á Kaffi Vest. 3. nóvember 2016 13:45
Biggi á Airwaves: Leiðinlegur listapoppari, fallegasta bumba í heimi og frumraun Aron Can á Airwaves Biggi sá Juliu Holter, Kött Grá Pjé, Aron Can og Beloji í gærkvöldi. 4. nóvember 2016 16:00