Nóvemberspá Siggu Kling – Hrútur: Þú átt ekki að hafa á þér neinn járnaga 4. nóvember 2016 09:00
Elsku ljúfi Hrúturinn minn. Upphafsorð mín eru yfirleitt elsku sterki Hrúturinn minn en þú þarft ekkert alltaf að vera sterkur. Það eru líka tímabil, eins og núna, sem þú mátt leggjast undir feld og vera latur. Leti getur líka verið sexí. Þú átt ekki að hafa á þér neinn járnaga. Því það þýðir ekki að þú sért að gefast upp heldur þýðir það að þú þarft ekki að stjórna öllu í kringum þig. Um leið og þú sleppir núna tökunum og lætur þig fljóta með straumnum, þá færðu tilboðin til þín á færibandi. Þú þarft að taka þér oftar frí, því að það er ekki gott að vera ómissandi og það er enginn ómissandi! Þegar þú ákveður að slaka aðeins á, þá opnast hurðir fyrir þér ein af annarri og þetta tímabil verður þér svo miklu auðveldara. Það er búinn að vera stormur, en það er stormurinn á undan logninu. Haustið var tímabil breytinga og veturinn gefur þér þá ró sem þú vilt. Því eins einkennilegt og það er, þá elskar þú veturinn. Það er algengt að þú sért toppurinn á trénu og hafir ekki marga til að ráðfæra þig við um hvernig þú eigir að taka á hlutunum. Ég held að það sé óalgengast að fólk í hrútsmerkinu hafi sálfræðing, því þú vilt leysa allt einhvern veginn bara sjálfur. Það er mjög mikilvægt að spyrja einhvern sem þú treystir um ráð og ennþá mikilvægara að þú farir eftir því. Núna mun veröldin senda þér skilaboð í gegnum náinn vin um hvernig þú eigir að tækla lífið. Þó að þér finnist vera vandræði vera í kringum þig, þá verðurðu hissa á hversu ofureinföld lausn verður send til þín. Þú ert að taka út svo mikinn þroska og þú verður vitrari og vitrari og þú ert að læra að vera algjörlega eins fordómalaus og hægt er. Þá verður orkan þín mýkri og fólk mun taka eftir því. Á þessu tímabili sem þú ert að fara inn í laðar þú til þín öðruvísi fólk. Eitthvað nýtt og óvenjulegt. Þú sérð heildarmyndina af lífi þínu skýrar og setur orkuna þína á meiri hraða en þú ert vanur að gera. Ef það hafa verið erfiðleikar í ástamálum þínum, sem kemur svoldið skýrt fram í kortunum, þá skaltu muna það, að allt gerist af ástæðu. Það er mjög lítið til af tilviljunum. Ef þú ert á lausu, hjartað mitt, þá þarftu að muna að vera ekki feiminn. Hitt kynið á það til að misreikna þig og halda að þú hafir bara engan áhuga. Þú skalt segja þeim sem þú hefur áhuga á, hvort sem það er í ástamálum eða ef þig vantar einhvern til að vinna með, þá skaltu segja þeim það skýrt, þú hefur engu að tapa og allt að vinna, því það er að koma svo mikil breyting á orkustöðvum þínum að þú átt eftir að koma sjálfum þér á óvart. Frægir Hrútar: Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona, Silvía Lovetank listamaður, Marta María Jónasdóttir á Smartlandi, Björgvin Halldórsson söngvari, Kári Stefánsson vísindamaður, Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, Hugh Hefner, Birgitta Jónsdóttir pírati, Anna Svava Knútsdóttir leikkona, Ólöf Erla, grafískur hönnunarsnillingur, Elton John söngvari, Salka Sól súperdrottning, Þóra í Atlanta, Sigmar Guðmundsson sjónvarpsmaður, Berglind Pétursdóttir, Steinunn Jónsdóttir, söngkona AmabAdamA, Þórhallur Þórhallsson uppistandari, Kristín Þorsteinsdóttir, aðalritstjóri 365 miðla, Alda í Handy pandy, naglalistakona.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Maggie Smith er látin Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Íslensk börn skorti meiri aga Lífið Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Lífið Í hnapphelduna með krókódílamanninum Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Lífið Fleiri fréttir Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Prince-dansarinn Cat er látinn Heillandi haustkvöld í Höfuðstöðinni Svona undirbýr Bogi sig fyrir útsendingu Ekkert mál að hlaupa alveg staurblindur Sjá meira