Lífið

Kim birtir fyrstu myndina af sér eftir ránið í París - Mynd

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kim hefur haldið sig heima eftir að hún kom frá París.
Kim hefur haldið sig heima eftir að hún kom frá París. Vísir/getty
Tökur á raunveruleikaþættinum Keeping Up With The Kardashians eru farnar af stað á ný, en gert var þriggja vikna hlé á tökum eftir að aðalstjarna þáttarins Kim Kardashian var rænd á hótelherbergi sínu í París.

Seint í gærkvöldi setti Kim Kardashian inn mynd af sér á Facebook og er það í fyrsta skipti sem Kim setur eitthvað inn á samfélagsmiðla eftir ránið.

Raunveruleikastjarnan var rænd af tveimur vopnuðum mönnum sunnudagskvöldið 3. október. Hún var stödd á lúxushóteli í borginni þegar mennirnir, sem voru íklæddir lögreglubúningum, bönkuðu upp á.

Ljóst er að ræningjarnir komust í burtu með skartgripi sem metnir eru á hundruð milljóna og er þeirra leitað. Alls tóku fimm menn þátt í ráninu.

Hér að neðan má sjá myndina umræddu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.