Enski boltinn

Liverpool-menn óðu í færum en náðu aðeins í stig | Sjáðu samantektina

Stefán Árni Pálsson skrifar
Southampton og Liverpool gerðu markalaust jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Liverpool var töluvert betri aðilinn í leiknum í dag en leikmenn liðsins náðu ekki að nýta sér mörg fín færi. 

Hvað eftir annað fengu leikmenn Liverpool algjört dauðafæri en þeim var fyrirmunað að skora. 

Niðurstaðan því markalaust jafntefli og er Liverpool enn á toppnum með 27 stig. Southampton er í 10. sæti með 14 stig. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×