Bíó og sjónvarp

Natalie Portman skín eins og stjarna í nýrri stiklu fyrir Jackie

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Natalie Portman.
Natalie Portman. Mynd/Fox Searchlight
Talið er víst að Natalie Portman eigi góða möguleika á að hljóta Óskarsverðlaunin fyrir leik sinn í myndinni Jackie sem væntanleg er í kvikmyndahús. Búið er að gera stiklu fyrir myndina og þar sést glitta í af hverju líklegt er að Portman muni taka á móti gylltu styttunni á næsta ári.

Jackie fjallar um Jackie Kennedy og hvernig hún tekst á við morðið á eiginmanni sínum John F. Kennedy Bandaríkjaforseta í Dallas í nóvember 1963.

Myndin verður frumsýnd í desember en hefur verið sýnd á kvikmyndahátíðum víða um heim og hlotið fádæma viðtökur en sjá má sýnishorn úr myndinni hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×