Innlent

Háskóli Íslands stefnir í 300 milljóna halla

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, segir skólann hafa þurft að upplifa mikinn niðurskurð undanfarin ár. Það gangi ekki lengur.
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, segir skólann hafa þurft að upplifa mikinn niðurskurð undanfarin ár. Það gangi ekki lengur. vísir/valli
Háskóli Íslands verður að óbreyttu rekinn með 300 milljóna króna halla á þessu ári. Háskólaráð telur algjöra óvissu ríkja um framhaldið.

Að óbreyttu geti Háskóli Íslands ekki staðið undir hlutverki sínu í íslensku samfélagi. Langvarandi undirfjármögnun háskólans muni hafa bein áhrif á grunnstoðir samfélagsins og draga jafnframt úr áhuga og möguleikum ungs fólks á að mennta sig og starfa á Íslandi.

„Við erum búnir að vera í miklum niðurskurði á undanförnum árum og þetta bara gengur ekki lengur,“ segir Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, í samtali við Fréttablaðið. Þrátt fyrir allan þann hallarekstur sem stefnir í þurfi að ráðast í ýmsar umbætur. „Þess vegna er staðan mjög erfið.“

Jón Atli fer ekki í neinar grafgötur með það að ályktun háskólaráðs sé beint að stjórnmálaflokkunum í viðræðum um myndun meirihluta. „Já, við erum að gera það og við fögnum því að stjórnmálamenn tóku málefni háskólanna til umfjöllunar í kosningabaráttunni og við teljum það gríðarlega mikilvægt að það gleymist ekki núna þegar farið er að mynda ríkisstjórn. Vegna þess að þetta er framtíð þjóðarinnar sem við erum að hugsa um fyrst og fremst,“ segir hann.

Jón Atli bendir á að Íslendingar séu að ná Norðurlandaþjóðum í samanburði hvað varðar hlutfall þjóðarinnar sem sækir háskólamenntun.

„Aðalatriðið er að standa vel við bakið á háskólastarfinu þannig að nemendurnir séu vel fjármagnaðir, ef svo má að orði komast,“ segir háskólarektor.

Þurfa 1,5 milljarða

Háskólar á Íslandi eru ekki jafn vel fjármagnaðir og háskólar í nágrannalöndunum, segir í ályktun háskólaráðs þar sem vísað er í skýrslur Efnahags- og framfarastofnunarinnar.

„Mikilvægt er að stíga strax ákveðin skref í þá átt að bæta fjármögnun háskólanna með auknum fjárveitingum. Til að gera allra brýnustu leiðréttingar á reikniflokkum ólíkra námsgreina þarf Háskóli Íslands um 1,5 milljarða króna árið 2017,“ segir í ályktuninni og tekið er fram að núverandi reikniflokkaverð mennta- og menningarmálaráðuneytisins hamli eðlilegum og nauðsynlegum kennsluháttum við skólann. „Dregið hefur verið úr þjónustu við nemendur, álag á starfsfólk aukist til muna og þurft að fresta nauðsynlegri fjárfestingu í tækjum, búnaði og öðrum innviðum,“ eins og segir í ályktuninni.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×