Martröð Erlu Bolladóttur hófst árið 1975 þegar hún var handtekin ásamt öðrum sakborningum og sökuð um hlutdeild á morði á Geirfinni Einarssyni og Guðmundi Einarssyni sem hurfu með nokkurra mánaða millibili árið 1974. Erla boðaði til blaðamannafundar í dag vegna þess að endurupptökunefnd sem haft hefur málið til skoðunar frá árinu 2014 bað í gær um enn einn frestinn til að skila úrskurði sínum.
Krafa um endurupptöku hinna svo kölluðu Guðmundar- og Geirfinnsmála hefur verið uppi frá því Sævari Ciesielski var hafnað um endurupptöku árið 1997 þegar tuttugu og tvö ár voru liðin frá handöku sex ungmenna sem síðar voru dæmd fyrir að hafa tekið þátt í að myrða Guðmund og Geirfinn, sem aldrei hafa fundist eftir að þeir hurfu árið 1974. En sýnt hefur verið fram á að sakborningar voru beittir harðræði í fangelsinu og við yfirheyrslur.

„Í síðustu viku var endurupptökunefnd kynnt fyrir til tilhlutun setts ríkissaksóknara að einstaklingur byggi mögulega yfir upplýsingum er kynnu að varða hvarf Geirfinns Einarssonar 19. nóvember 1974.“
„Af þessum sökum meðal annars er óhjákvæmilegt að uppkvaðning úrskurðar endurupptökunefndar tefjist og þá væntanlega fram yfir áramót,“ segir í bréfi endurupptökunednar.
Nefndin komin út fyrir verksvið sitt
Erla segir endurupptökunefnd komna útfyrir verksvið sitt með því að úrskurða ekki hvort lög hafi verið brotin á henni við alla málsmeðferðina á áttunda áratugnum.
„Mín umsókn um endurupptöku er grundvölluð á lögbrotum gegnumsneitt í málsmeðferðinni allri og hefur ekkert að gera með neitt annað. Endurupptökunefnd hefur ekki það hlutverk að komast að því hvað varð um þessa menn,“ segir Erla.
Hefur þú jafnvel á tilfinningunni að þeir séu búnir að komast að niðurstöðu?
„Ég hef það ekki bara á tilfinningunni. Í bréfinu eins og ég las fyrir ykkur, kemur fram að uppkvaðning úrskurðar tefjist,“ segir Erla.

„Ég held þennan blaðamannafund núna af því að ég get ekki lengur gengið um grátandi heima hjá mér að bíða eftir einhverri niðurstöðu.“
Finnst þér að þetta sé í raun og veru viðbótarrefsing fyrir glæp sem þú aldrei framdir?
„Þetta er í rauninni áframhaldandi ill meðferð og kúgun sem byrjaði í desmber 1975 og henni hefur ekki linnt,“ segir Erla Bolladóttir.
Þessa frétt má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en einlægt viðtal við Erlu í heild sinni má sjá hér fyrir neðan.