Þrír Skotar á skotskónum þegar West Brom rúllaði yfir Jóhann Berg og félaga | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. nóvember 2016 21:45
West Brom fór illa með Burnley þegar liðin mættust á The Hawthornes í lokaleik 12. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Lokatölur 4-0, West Brom í vil. Jóhann Berg Guðmundsson var á sínum stað í byrjunarliði Burnley og lék fyrstu 79 mínútur leiksins. Heimamenn voru miklu sterkari aðilinn í leiknum og eftir 37 mínútna leik var staðan orðin 3-0. West Brom bætti svo einu marki við í seinni hálfleik og 4-0 sigur staðreynd. Matt Philipps kom West Brom yfir strax á 4. mínútu eftir klaufagang í vörn Burnley. Gestirnir voru meira með boltann eftir þetta en heimamenn voru stórhættulegir í skyndisóknum. Eftir eina slíka skoraði James Morrison annað mark West Brom á 16. mínútu. Þriðji Skotinn komst svo á blað þegar Darren Fletcher skoraði af stuttu færi á 37. mínútu eftir fyrirgjöf Philipps. Staðan var 3-0 í hálfleik og allt fram á 64. mínútu þegar besti maður vallarins, Salomón Rondón, skoraði fjórða og síðasta mark leiksins. Jóhann Berg átti tvö ágætis skot í seinni hálfleik sem Ben Foster, markvörður West Brom, varði. Með sigrinum fór West Brom upp í 9. sæti deildarinnar. Burnley er í því tólfta en liðið hefur ekki enn unnið útileik á tímabilinu.
Enski boltinn Mest lesið Klopp ráðinn til Red Bull en skýr klásúla í samningnum Fótbolti Skilaboðum lekið og Haaland ósáttur Fótbolti Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Enski boltinn Heimir hristir upp í hlutunum: „Ég vil gera þetta svona“ Fótbolti „Verð að líta á sjálfan mig sem KR-ing“ Fótbolti Draumur að rætast hjá bræðrunum Fótbolti Þorsteinn kynnti Bandaríkjafarana Fótbolti Kærasti Fallons Sherrock niðurbrotinn eftir sárt tap Sport Dómarar í ævilangt bann eftir kynlífsmyndband Fótbolti Hópurinn sem fer til Bandaríkjanna Fótbolti Fleiri fréttir Leikmaður Chelsea flutti aftur heim til mömmu og pabba Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Grealish: Ég hefði átt að fara með á EM Félögunum refsað en Jackson sleppur Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Ratcliffe um Ten Hag: „Ekki mín ákvörðun“ „Þá er ég mjög heimskur þjálfari“ Samherji Stefáns Teits í átta leikja bann fyrir að bíta mótherja Sjá meira