Lífið

Kim Kardashian sögð vilja skilnað

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Samkvæmt heimildum US Weekly líður Kim eins og hún sé innilokuð.
Samkvæmt heimildum US Weekly líður Kim eins og hún sé innilokuð. Vísir/US Weeekly/Getty
Kim Kardashian er sögð íhuga skilnað við rapparann Kanye West. Samkvæmt heimildum US Weekly mun hún þó ekki sækja strax um skilnað en hún er sögð íhuga hver næstu skref hennar eru.

Kanye var lagður inn á sjúkrahús í síðasta mánuði og samkvæmt heimildum US Weekly vill hún hjálpa honum að ná bata áður en hún tekur lokaákvörðun. Þá vilji hún einnig tryggja að hún fái fullt forræði yfir börnum þeirra hjóna, þeim Saint og North.

Kardashian hefur verið lítið í sviðsljósinu undanfarið eftir að hún var rænd í París þann þriðja október síðastliðinn.

„Henni þykir vænt um Kanye og er fegin að hann sé að fá þá hjálp sem hann þarfnast,“ segir heimildarmaður US Weekly, „en henni hefur lengi liðið eins og hún sé innilokuð.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.