Bíó og sjónvarp

Glæný og sjóðheit stikla úr Fifty Shades Darker

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Stiklan er sjóðheit.
Stiklan er sjóðheit. Vísir/Skjáskot
Glæný og sjóðheit stikla úr Fifty Shades Darker, framhaldsmynd Fifty Shades of Grey er mætt á netið. Hægt er að sjá hana hér fyrir neðan.

Í aðalhlutverki stiklunnar er að sjálfsögðu samband aðalpersónanna tveggja, Christian Grey og Anastasia Steele en það lítur út fyrir að samband þeirra gæti átt sér viðreisnar von.

Forveri myndarinnar, Fifty Shades of Grey var stórsmellur og halaði inn 571 milljónum bandaríkjadollara í miðasölu.

Fifty Shades Darker er væntanleg í kvikmyndahús í febrúar 2017.   






Fleiri fréttir

Sjá meira


×