Desemberspá Siggu Kling - Krabbi: Þitt jákvæða karma mun gefa þér það sem þig vantar 2. desember 2016 09:00
Elsku eldheiti krabbinn minn. Það er svo mikil dásemdardýrð að vera í þessu merki, þið skapið allar skemmtilegu sögurnar og þegar upp er staðið samanstendur líf þitt bara af þeim sögum sem þú getur sagt um sjálfan þig og aðra í kringum þig. Þú ert að sjálfsögðu sögumaðurinn í ævisögu þinni. Og þegar ég skoða stjörnukortið þitt sé ég að þú ert að fara inn í mánuð þar sem miklar tilfinningar fara í gegnum huga þinn. Þú vilt gera öllum svo gott og gefa svo mikið og þú þarft því að vera viðbúinn að fá ekki það sem þig langar í í staðinn. Þitt jákvæða karma mun gefa þér það sem þig vantar úr annarri átt en þú býst við. Það verða meiri peningar í kringum þig og þeir munu gefa þér orku, enda eru þeir bara orka og þú átt eftir að vera dálítið eyðslusamur, og það er bara allt í lagi. Þó að þú sért þetta tilfinningamerki þá vilt þú ekki sýna miklar tilfinningar, þú ættir að sleppa meira fram af þér beislinu og sýna fólkinu þitt rétta eðli. Þú átt það til að dulbúa þig með húmor og gleði, þó að þú sért kannski ekki glaður. Ég er alls ekki að biðja þig um að breyta því, en þú þarft að læra að treysta betur, því fólk elskar þig og saknar þín og þetta er akkúrat mánuðurinn sem þú munt nota til að tengja þig við gamla vini, fólk sem þú hefur ekki séð lengi og út úr því mun spretta eitthvað svo dásamlega merkilegt. Þú ert fyrirmynd mjög margra í kringum þig og átt miklu fleiri aðdáendur en þig grunar. Þú verður alltaf jafn hissa ef einhver hrósar þér og þú átt það til að draga jafnvel úr hrósinu. Þú hefur ekki tíma fyrir neina vitleysu í desember, svo þú skalt ekki rugga ástarbátnum eða búa til vesen, þó að þér finnist þess þurfa. Þetta á sérstaklega við ykkur sem eruð í sambandi sem er ekki alveg fastmótað og þá sem eru á lausu, þá meina ég að stofna ekki til ástarævintýris sem auðsjáanlega gengur ekki upp. Það er mikilvægt að nota desember til að ná innra jafnvægi, því þú hefur kraft til að gera allt sjálfur og þarft ekki á neinni vitleysu að halda. Þér verður boðið merkilegt verkefni eða færð spennandi tilboð, sem þú hefur lengi beðið eftir. Þetta gæti allt tekið svolítinn tíma, en vertu bara alveg rólegur því að allt er að gerast á hárréttum tíma. Mottóið þitt í desember: Ég bið lífið um að leysa þau vandamál sem ég hef ekki tíma til að leysa.Frægir Krabbar: Bryndís Schram, Sigga Lorange Ostabúðarskvísa, Auddi Blö, sem við elskum öll, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og dúlla, Ólafur Stefánsson, handboltakappi og heimspekingur, Edda Sif, Sindri Sindrason, Ásdís Halla Bragadóttir, Hjörvar Hafliðason og Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari, Davíð hinn góði skóari í Hafnafirði, Stefán Árni Pálsson fréttamaður, Th. forseti Íslands, Bento veitingakóngur, Friðbjörn Europartakóngur.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Lífið Úr Idolinu yfir í útvarpið Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Lífið Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Lífið Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Lífið Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Lífið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Lífið Frumsýning á Vísi: Rokkað á miðju gólfi komin sjö mánuði á leið Tónlist Hjem til jul aftur á skjáinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Prince-dansarinn Cat er látinn Heillandi haustkvöld í Höfuðstöðinni Svona undirbýr Bogi sig fyrir útsendingu Ekkert mál að hlaupa alveg staurblindur „Æsandi að hugsa til þess að annar maður horfi á“ Breyttu Kolaportinu í risa skemmtistað „Æi góði hoppaðu upp í rassgatið á þér!“ Norðlenskur útsýnisdraumur „Hvar eru allir herramennirnir?“ Stefnumótunarferð Fossa með mökum í Prag Hittast á hlutlausum stað Risavaxinn mörgæsarungi nýjasta stjarna Melbourne Magnaðar myndir af lengstu á landsins Seldu Kolbeini Sigþórs og keyptu í miðbænum Tóku hraðanum misalvarlega en hlupu fyrir langveik börn Ebba Katrín og Oddur keyptu hús í miðbænum Sjá meira