Prófanir Uber vekja grunsemdir Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 19. desember 2016 07:00 Anthony Levandowski, varaforseti Uber. Vísir/AFP
Bifreiðaeftirlit Kaliforníuríkis í Bandaríkjunum krefst þess að Uber hætti þegar í stað að prófa sjálfkeyrandi bíla á götum ríkisins. „Það er ólöglegt fyrir fyrirtækið að keyra sjálfkeyrandi bíla sína á opinberum vegum án opinbers leyfis,“ segir í bréfi sem bifreiðaeftirlitið sendi Uber í gær. „Því þarf fyrirtækið þegar í stað að hætta prufum þar,“ segir enn fremur í bréfinu. Stjórnendur Uber eru hins vegar ósammála mati bifreiðaeftirlitsins. „Við höfum tekið eftir umræðu um hvort sérstakt leyfi þurfi fyrir prófanir okkar á sjálfkeyrandi tækni. Við höfum kynnt okkur málið vandlega og trúum því að sú sé ekki raunin,“ skrifaði Anthony Levandowski, varaforseti fyrirtækisins, í bloggfærslu. Þá gagnrýndi Levandowski reglugerðir ríkisins og sagði þær almennt of strangar. Þær gætu haft þau áhrif að hægja á framþróun tækninnar. Prófanir Uber á sjálfkeyrandi bílum standa einnig yfir í Pennsylvaníuríki sem hefur ekki sett sams konar lög og Kalifornía. Uber er þó ekki eina fyrirtækið sem prófar umrædda tækni þessa dagana í Kaliforníu. Tuttugu önnur fyrirtæki hafa fengið leyfi frá bifreiðaeftirliti ríkisins til slíkra prófana. Þeirra á meðal eru til að mynda Google, Tesla, BMW, Honda, Ford, Mercedes Benz, Nissan og General Motors.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Egill Þór er látinn Innlent Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Brást of harkalega við dyraati Innlent Flugferðum aflýst Innlent Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Veður Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman Innlent Hyggst greiða atkvæði með bókun 35 Innlent „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Innlent Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Erlent Nýir ráðherrar ætli að vinna saman og ekki loka sig af Innlent Fleiri fréttir Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Sænskur rappari skotinn til bana í bílastæðahúsi Skoða hvort stunguárás hafi átt að líkjast morðinu í New York Mangione líka ákærður af alríkissaksóknurum Saksóknari sagður óhæfur í síðasta málinu gegn Trump Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Danskt sjúkrahús kært til lögreglu vegna tilrauna á ungum drengjum Musk og Trump valda uppnámi í Washington Skorar vestrið á hólm í 21. aldar einvígi Vaktin: Dominique Pelicot dæmdur í tuttugu ára fangelsi Hætta að rukka í almenningssamgöngurnar Dómar yfirvofandi í máli Pelicot Sjá meira