Rúm sex prósent leikmanna í Pepsi-deild karla þéna yfir 900 þúsund á mánuði 17. desember 2016 12:30 Úr leik í Pepsi-deild karla í sumar. vísir/valli
Meðallaunin í Pepsi-deild karla eru frá 68 þúsundum til rúmlega 114 þúsund króna, en þetta kemur fram í könnun á vegum FIFPro sem birt hefur verið á heimasíðu samtakana. Átta lið af tólf sem spiluðu í Pepsi-deild karla í sumar tóku þátt í þessari könnun sem var gerð í sumar, en Stjarnan, Þróttur og Víkingur veittu ekki leyfi og ekki tókstað finna tíma fyrir Víking Ólafsvík samkvæmt mbl.is. Alls þéna 42,2% undir 114 þúsund krónum á mánuði í Pepsi-deildinni, en 20,6% þéna frá 228 þúsund upp til 456 þúsunda. 6,4% leikmanna þéna frá 913 þúsund upp til 1,7 milljóna króna. Launin eru oft á tíðum lengi að berast til leikmanna, en 36% leikmanna sögðu félögin hafa átt í vanskilum við leikmenn sína og er það allt frá innan við mánuði upp til þriggja mánaða að berast. Flest eru þó komin á innan við mánuði. 6% leikmanna sögðu félögin hafa greitt sér einum mánuði til þremur mánuðum eftir að launin hefðu átt að berast, en leikmönnum er frjálst að fara frítt frá félaginu ef það hefur ekki greitt sér laun í þrjá mánuði. Alls sögðust 21% vera ósátt með núverandi þjónustu hjá sínu félagi hvað varðar heilsu og því tengt, en athygli vakti að 14% leikmanna sögðust hafa orðið fyrir áreiti frá stuðningsmönnum, þjálfara eða þjálfarateymi viðkomandi félags. Margt athyglisvert kemur fram í skýrslu FIFPro, en þar er meðal annars fjallað um samninga leikmannamál, laun og áreiti. Hér má lesa meira um skýrsluna.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Fótbolti Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims Fótbolti Fann ástina í örmum skilnaðarlögfræðingsins Fótbolti Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Fótbolti Eyddi morgninum hjá tannlækni eftir slys Handbolti Ásgeir Örn ósáttur: „Held að skýrsla eftirlitsmannsins sé ekki rétt“ Handbolti Komnar í vinnu við að gagnrýna Þóri Handbolti „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Fótbolti Fór holu í höggi yfir húsið sitt Golf Leggja niður störf og föst laun stórmeistara Sport Fleiri fréttir Elfar Árni heim í Völsung Jóhann semur og heldur Jóhanni í teyminu Eiður Aron áfram á Ísafirði Andri Rúnar í Stjörnuna Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Sjá meira