Innlent

Kennarar líta á samninginn sem vopnahlé til eins árs

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Kennarar skiptust í tvær fylkingar í atkvæðagreiðslunni. Minnihlutinn vildi að núverandi samninganefnd viki og halda baráttunni áfram. Hann laut í gras fyrir sjónarmiðum um að halda áfram að ári og þá á hærra kaupi.
Kennarar skiptust í tvær fylkingar í atkvæðagreiðslunni. Minnihlutinn vildi að núverandi samninganefnd viki og halda baráttunni áfram. Hann laut í gras fyrir sjónarmiðum um að halda áfram að ári og þá á hærra kaupi. Vísir/Ernir
Þrátt fyrir að hafa samþykkt nýjan kjarasamning í atkvæðagreiðslu í fyrradag eru kennarar ekki sáttir. Samkomulaginu hefur verið líkt við vopnahlé.

Skrifað var undir samning 29. nóvember síðastliðinn og hann samþykktur með 55 prósentum greiddra atkvæða í fyrradag. 43 prósent sögðu nei en tæplega 91 prósent kennara tók þátt í atkvæðagreiðslunni. Áður höfðu kennarar fellt kjarasamninga tvívegis.

Hinn nýi samningur er til nóvember á næsta ári og felur í sér tæplega ellefu prósenta flata launahækkun auk 200 þúsund króna eingreiðslu við undirritun.

Fréttablaðið heyrði í gær í kennurum víða um land til að kanna afstöðu þeirra til úrslita kosninganna. Nær allir eru sammála um að í niðurstöðunni felist ekki sigur, ekki einu sinni áfangasigur. Í raun sé um vopnahlé að ræða á meðan kanónurnar séu hlaðnar að nýju fyrir þau átök sem vænta má eftir lok samningstímans á næsta ári.

Á umræðuvettvangi kennara hefur talsvert verið rætt og ritað um niðurstöðuna. Þeir sem höfnuðu samningnum eru sárir út í já-hópinn. Þeir vildu frekar fella samninginn og kjósa nýtt fólk til að fara fyrir samninganefnd kennara. Allir virðast hins vegar vera sammála um að halda baráttunni áfram.

Tugir kennara sögðu starfi sínu lausu í síðasta mánuði. Meira virðist vera um það að kennarar á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi segi upp heldur en á landsbyggðinni. Hluti þeirra sem sagði upp hefur dregið uppsagnir sínar til baka. Aðrir liggja enn undir feldi og velta því fyrir sér hvað skuli gera.

Í hópi þeirra sem Fréttablaðið heyrði í voru kennarar sem ákveða sig á næstu dögum. Þeir segja ljóst að samningurinn verði ekki til þess að halda í þá. Hins vegar komi til greina að draga uppsögnina til baka til þess að halda baráttunni áfram á næsta ári. Sveitarfélögin og samninganefnd þeirra séu á skilorði. Haldi hún áfram á sömu braut megi búast við því að kennarar fái endanlega nóg.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×