Enski boltinn

Leicester aftur í gamla farið | Sjáðu markið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Englandsmeistarar Leicester City náðu ekki að fylgja eftir frábærum sigri á Man. City í kvöld.

Þá varð liðið að sætta sig við tap, 1-0, gegn Bournemouth. Marc Pugh skoraði eina mark leiksins á 34. mínútu.

Þeir sem héldu að Leicester væri loksins komið í gang eftir sigurinn á City þurfa að endurskoða það á nýjan leik.

Leicester er því áfram í fjórtánda sæti deildarinnar en Bournemouth stekkur með sigrinum úr tólfta sætinu í það sjöunda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×