Innlent

Betri nýting orkuauðlinda með nýjum samningum

Svavar Hávarðsson skrifar
Án samninganna hefði í raun þurft að stækka virkjanir sem nemur stækkun Búrfellsvirkjunar – eða tæplega 150 MW.
Án samninganna hefði í raun þurft að stækka virkjanir sem nemur stækkun Búrfellsvirkjunar – eða tæplega 150 MW. Vísir/Vilhelm
Landsvirkjun hefur lokið samningagerð við sex sölufyrirtæki rafmagns. Um er að ræða nýtt fyrirkomulag samninga sem taka gildi um næstu áramót. Þetta nýja fyrirkomulag felur í sér mikilvæga breytingu fyrir Landsvirkjun því um leið og það tekur gildi renna út samningar sem voru gerðir árið 2005 og hafa gilt í 12 ár.

Landsvirkjun gerði stóra rafmagnssamninga við sex sölufyrirtæki um sölu á raforku árið 2005. Samningarnir voru til eins, fimm, sjö og tólf ára. Nú um áramótin renna út samningarnir sem voru til tólf ára. Sölufyrirtækin eru Orkusalan, Orka náttúrunnar, HS Orka, Fallorka, Orkubú Vestfjarða og Rafveita Reyðarfjarðar. Landsvirkjun selur ekki rafmagn beint til heimila eða smærri fyrirtækja heldur á heildsölumarkaði til sölufyrirtækja sem selja það áfram til endanotenda. Sölufyrirtækin kaupa hluta orku sinnar af Landsvirkjun en vinna einnig hluta í eigin virkjunum. Um 20 prósent af rafmagnssölu Landsvirkjunar eru seld með þessum hætti, en 80 prósent fara til stórnotenda.

Með nýju fyrirkomulagi samninga þurfa sölufyrirtækin ekki lengur að binda aflkaup sín yfir heilt ár í senn. Rafmagnsnotkun er að jafnaði minni yfir sumarmánuðina og því geta sölufyrirtækin náð verulegri hagræðingu í innkaupum sínum með því að kaupa minna afl á þeim tíma.

Landsvirkjun getur nýtt tækifærið og skipulagt viðhaldsverkefni betur en áður og selt þeim sem á þurfa að halda afl með styttri fyrirvara. Nýja fyrirkomulagið bætir þannig nýtingu orkuauðlinda landsins og eykur sveigjanleika orkufyrirtækja til að bregðast við breyttum aðstæðum í rekstri.

Samkvæmt áætlunum sölufyrirtækjanna sex um innkaup rafmagns til endursölu til heimila og smærri fyrirtækja mun meðalverð lækka um 2,6 prósent á föstu verðlagi milli ára með tilkomu nýju samninganna. Það er svo undir sölufyrirtækjunum komið hvort þessi hagræðing skilar sér til neytenda – heimila og smærri fyrirtækja.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×