Lífið

Þriggja ára Skoti segir sigur Íslendinga á Englandi það eina jákvæða á árinu

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Nelson-gengið fer á léttum nótum yfir árið.
Nelson-gengið fer á léttum nótum yfir árið. Skjáskot
Dóttir Skotans Marks Nelson hefur fylgst betur með fréttum ársins en flestir.

Heilt yfir er hún ekki beint sátt með árið sem nú er að renna sitt skeið.

Fjölmargir dáðir tónlistarmenn kvöddu á árinu, breska pundið hefur fallið mikið eftir Brexit og þá kom í ljóst að Donald Trump verður forseti Bandaríkjanna.

Litla skottið er þó ekki alveg fullkomlega neikvætt. Hún segir eina ljósa punktinn á skoska árinu vera sigur íslenska landsliðsins á því enska á EM í sumar.

Hér að neðan má sjá Mark Nelson og þriggja ára dóttur hans skauta yfir árið 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.