Enski boltinn

Búið að kæra Firmino fyrir að aka undir áhrifum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Roberto Firmino.
Roberto Firmino. vísir/getty
Roberto Firmino, leikmaður Liverpool, var í gær kærður fyrir að hafa ekið undir áhrifum áfengis á jóladag.

Mál hans verður tekið fyrir þann 31. janúar en sama dag á Liverpool að spila gegn Chelsea á Anfield.

Liverpool mun ekki tjá sig um mál leikmannsins fyrr en það hefur runnið sitt skeið í réttarkerfinu.

Firmino hefur leikið vel fyrir Liverpool í vetur og spurning hvaða áhrif þessa uppákoma mun hafa á hans spilamennsku á næstunni.

Hann kom til félagsins frá Hoffenheim fyrir 29 milljónir punda sumarið 2015.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×