Aron og félagar jólameistarar í Danmörku Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. desember 2016 20:06 Aron tók við Aalborg fyrir tímabilið og hefur gert góða hluti með liðið. vísir/getty
Aron Kristjánsson og lærisveinar hans í Aalborg eru jólameistarar í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta. Aalborg vann sex marka útisigur á Tönder, 22-28, í kvöld. Liðið fer því með tveggja stiga forskot á toppnum inn í fríið sem gert verður á keppni í dönsku deildinni vegna HM í Frakklandi. Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði eitt mark fyrir Aalborg en Arnór Atlason lék ekki með liðinu í kvöld. Ómar Ingi Magnússon skoraði níu mörk fyrir Århus sem laut í lægra haldi fyrir GOG, 33-27. Þetta var þriðja tap Århus í síðustu fjórum leikjum en liðið er í 9. sæti deildarinnar með 14 stig. Ómar Ingi skoraði þrjú mörk úr sex skotum utan af velli og nýtti öll sex vítin sín. Róbert Gunnarsson skoraði eitt mark fyrir Århus en Sigvaldi Guðjónsson komst ekki á blað. Randers batt enda á fjögurra leikja taphrinu þegar liðið vann óvæntan sigur á Skjern á heimavelli, 31-27. Viggó Kristjánsson skoraði eitt mark fyrir Randers og Arnór Freyr Stefánsson varði eitt vítakast í markinu. Tandri Már Konráðsson skoraði eitt mark fyrir Skjern. Eftir sex sigra í röð töpuðu Vignir Svavarsson og félagar í Team Tvis Holstebro fyrir Ribe-Esbjerg, 30-23. Vignir, sem hefur spilað frábærlega undanfarnar vikur, skoraði eitt mark í leiknum.
Handbolti Mest lesið Klopp ráðinn til Red Bull en skýr klásúla í samningnum Fótbolti Skilaboðum lekið og Haaland ósáttur Fótbolti Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Enski boltinn Heimir hristir upp í hlutunum: „Ég vil gera þetta svona“ Fótbolti „Verð að líta á sjálfan mig sem KR-ing“ Fótbolti Draumur að rætast hjá bræðrunum Fótbolti Þorsteinn kynnti Bandaríkjafarana Fótbolti Kærasti Fallons Sherrock niðurbrotinn eftir sárt tap Sport Dómarar í ævilangt bann eftir kynlífsmyndband Fótbolti Hópurinn sem fer til Bandaríkjanna Fótbolti Fleiri fréttir „Ég veit að næsta lyftingaræfing verður öflug hjá þeim“ Valsmenn lágu í valnum eftir góða byrjun „Aðalmunurinn hvernig líkamlegir burðir eru“ FH átti erfitt uppdráttar án lykilleikmanna Vandaverk vængbrotinna FH-inga: „Gefum allt í botn“ Ómar Ingi frábær í öruggum sigri Magdeburg Orðaður við Ísland í fyrra en virðist taka við Svíum Haukar unnu einvígið með 35 marka mun Valskonur flugu áfram í aðra umferðina Arnór lét til sín taka í þriðja sigri Fredericia í röð Óðinn Þór öflugur ÍBV sótti sigur í Garðabæinn Risasigrar hjá Val og Haukum Selfoss komið á blað Fjölnir með frábæran sigur á Stjörnunni Uppgjörið: FH - Valur 23-30 | Valur á flugi og FH ekki eins án Arons Sigursteinn Arndal: FH liðið langt frá sínu besta Grótta tyllti sér á toppinn og KA fékk fyrstu stigin Magdeburg missti heimsmeistaratitilinn „Slúðrað og talað um mig í öllum hornum“ Haukar og HK sættust á stig eftir æsispennandi leik Nítján marka stórsigur hjá Haukum Elliði markahæstur, öruggt hjá Andra og Andreu Óðinn markahæstur í toppslagnum Uppgjörið: Fram - Valur 25-29 | Valur vann stórveldaslag Íslendingaliðið með fullt hús stiga eftir fimm umferðir Þórir sáttur með eftirmanninn: „Hann er sá rétti“ Magdeburg í úrslit fjórða árið í röð Bjarki Már í úrslit á kostnað Barcelona Arftaki Þóris fundinn: „Þetta eru stórir skór að fylla í“ Sjá meira