„Ég er alin upp við að fá ris à l’amande í eftirrétt á aðfangadag og þegar ég ákvað að fylgja í fótspor sambýlismanns míns og hætta að borða dýraafurðir þá kom ekki annað til greina en að gera vegan útgáfu af réttinum,“ segir Þorbjörg, eða Tobba eins og hún er gjarnan kölluð.
„Það er mjög auðvelt að sleppa mjólkinni þar sem við erum komin með svo margar mismunandi gerðir af jurtamjólk. Ég hafði ekki fundið jurtarjóma sem mér finnst góður en eftir smá Google-leit þá komst ég að því að kókosmjólk þeytist ljómandi vel. Seinustu jól gerði ég svo vegan útgáfu af ris à l’amande og verður hún aftur núna um jólin.“
Tobba tók upp vegan mataræði í janúar á þessu ári. „Ég byrjaði með því að taka þátt í Veganúar. Þá fyrst hætti ég alveg að borða allar dýraafurðir en þá var um það bil ár síðan ég hafði hætt að kaupa kjöt fyrir heimilið.“

„Við sáum fyrir okkur að þetta væri góð leið til að halda utan um uppskriftirnar okkar, svona eins konar rafræn útgáfa af uppskriftabók. Við fengum það í móðurarf að hafa gaman af því að baka. Móðuramma okkar var mjög iðin við að baka og leyfði okkur alltaf að hjálpa til þegar við vorum litlar. Mamma okkar er einnig mjög iðin í eldhúsinu og bakar t.d. endalaust mikið fyrir jólin,“ segir Tobba.