Fótbolti

Skoraði sitt fyrsta mark í 18 mánuði og Ungverjar unnu Austurríki á EM

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ungverjar fagna marki sínu með stuðningsmönnunum í stúkunni.
Ungverjar fagna marki sínu með stuðningsmönnunum í stúkunni. Vísir/Getty
Ein óvæntustu úrslit Evrópumótsins til þessa litu dagsins ljós í fyrsta leiknum í riðli Íslands þegar Ungverjar unnu 2-0 sigur á Austurríki.  Sigurinn var fyllilega sanngjarn enda stóð ungverska liðið sig frábærlega í kvöld.

Adam Szalai var hetja ungverska liðsins en framherjinn sem hafði ekki skorað fyrir félagslið eða landslið í átján mánuði skoraði fyrra mark Ungverja á 63. mínútu. Varamaðurinn Zoltán Stieber innsiglaði síðan sigurinn á 87. mínútu.

Austurríkismenn enduðu leikinn manni færri því Aleksandar Dragovic fékk sitt annað gula spjald á 66. mínútu eða aðeins fjórum mínútum eftir að Ungverjar komust í 1-0.

Það var mikið búist við af austurríska liðinu fyrir Evrópumótið en frammistaða þess í kvöld var ekki sannfærandi. Ungverjar unnu aftur á móti frábæran sigur og hafa með honum opnað riðilinn upp á gátt.

Gábor Király, markvörður Ungverja, varð í kvöld elsti leikmaður EM frá upphafi og hélt upp á metið með því að halda marki sínu hreinu. Það hefði þó getað endað öðruvísi.

Austurríkismenn fengu næstum því draumabyrjun þegar David Alaba skaut í stöngina eftir aðeins 30 sekúndur og austurríska liðið fékk hættulegri færi í fyrri hálfleiknum.

Ungverska liðið var samt alls ekki síðri aðilinn í fyrri hálfleiknum og Balázs Dzsudzsák fékk fínasta færi undir lok fyrri hálfleiksins.

Adam Szalai kom Ungverjum í 1-0 á 62. mínútu eftir frábært þríhyrningsspil við y    László Kleinheisler sem sendi boltann á hárréttum tíma inn í teig þar sem Szalai lagði hann undir markvörðinn og í markið. Szalai hafði ekki skorað fyrir landslið eða félagslið síðan árið 2014.

Zoltán Stieber kom inná sem varamaður á 79. mínútu og hann innsiglaði sigurinn eftir skyndisókn á 87. mínútu.

Næsti leikur ungverska liðsins er á móti Íslandi á laugardaginn en Austurríkismanna bíður erfiður leikur á móti Portúgal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×